Um helgina fór fram flokksráðsfundur Vinstri grænna þar sem samþykktar voru ályktanir flokksins. Í þeim segir meðal annars að flokksráðið gagnrýni fyrirhugaðan niðurskurð til Loftslags- og orkusjóðs en óásættanlegt sé að draga úr fjármagni til loftslagsmála þegar þörfin fyrir markvissar aðgerðir hafi aldrei verið brýnni.
„Ísland verður að standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar með fjármögnuðum og tímasettum aðgerðum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Kolefnisjöfnun og bókhaldslausnir koma ekki í stað raunverulegs samdráttar í losun,“ segir í ályktuninni.
„Afskaplega öfugsnúin staða“
Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi og sagnfræðingur flokksins, segir umhverfismál hafa með öllu móti horfið úr umræðum þingsins. Sömuleiðis gagnrýnir hann afstöðu Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfisráðherra í virkjunarmálum.
„Umhverfismálin hafa algjörlega gufað upp og við erum með harðasta virkjunarsinna landsins sem umhverfisráðherra, sem er afskaplega öfugsnúin staða,“ sagði Stefán Pálsson á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
Þá hafnar flokksráð VG því að náttúruvernd sé látin víkja fyrir orkufyrirtækja, sjókvíaeldisfyrirtækja eða orkufreks iðnaðar á borð við gagnaver.“
„Orkuskipti eru nauðsynleg en réttlæta ekki óhefta virkjanaframkvæmd eða óafturkræf inngrip í verðmæt náttúrusvæði. Flokksráðið lýsir yfir þungum áhyggjum af áformum um stórfellda röskun víðerna vegna vindorkuvera án skýrrar heildarstefnu eða alvöru samráðs við almenning og heimafólk.“
Grafi undan stuðningi við börn og fólk í viðkvæmri stöðu
Þá hafnar ráðið því að ábyrg efnahagsstjórn felist í niðurskurði og veikingu grunnþjónustu. Uppsagnir og niðurskurður grafi undan starfsöryggi og stuðningi við börn og fólk í viðkvæmri stöðu. Árangur í efnahagsmálum verði að meta út frá lífskjörum og félagslegum stöðugleika en ekki aðeins tölum á blaði.
Í ályktuninni krefst flokksráð VG að auki þess að íslensk stjórnvöld sýni andstöðu sína við hernaðaraðgerðir Ísraels á Gasa í verki og fylgi fordæmingum á alþjóðavettvangi. Sömuleiðis er þess krafist af íslenskum stjórnvöldum að banna innflutning vara af hernumdum svæðum í Ísrael og að þau beiti sér fyrir efnahagsþvingunum.
Hlusta má á viðtal við Stefán Pálsson og Stefán Einar Stefánsson á Sprengisandi á Bylgjuni frá því fyrr í dag í spilaranum hér að neðan. Þeir ræddu við Pál Mganússon um fréttir vikunnar og ástandið í pólitíkinni.