Björgunarsveitin Elliði greinir frá því í færslu á Facebook að aðstæður útkallsins hafi verið hættulegar björgunarsveitarmönnum en Kleifá sé óvenju vatnsmikil um þessar mundir. Bíllinn hafi farið út af veginum austan við ána og staðnæmst í ánni á nokkru dýpi og straumþungi hafi verið mikill.
Tveir erlendir ferðamenn voru um borð í bílnum og draga þurfti bílinn upp úr ánni til þess að ná öðrum þeirra úr honum og var hann fluttur til aðhlynningar með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Jónas Hallgrímur Ottósson yfirlögregluþjónn á Vesturlandi sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að sá hefði verið fastur í bílnum í töluverðan tíma.
Hinn hafði komist út úr bílnum sjálfur og var hann fluttur með sjúkrabíl. Lögregla hefur ekki getað sagt til um ástand farþeganna tveggja.
Fundu tvær ferðatöskur í ánni
Einn björgunarsveitarmaður sem hafi verið fyrir tilviljun á ferðinni hafi verið fyrstur á vettvang. Þá komu tveir til viðbótar að heiman, annar á dráttarbíl.
„Í þessu útkalli komu björgunarmenn Elliða með bjargir sem gátu nýst á vettvangi og tóku þátt í að rýma vettvang og tryggja aðstæður í nágrenni slyss áður en lögregla mætti á vettvang.“
Þá óskaði lögregla eftir aðstoð björgunarsveitarinnar síðdegis við að finna ferðatöskur og aðra muni sem talið var að áin hefði hrifsað með sér. Í leitinni hafi tvær ferðatöskur fundist auk annarra lausra muna.