Og nei, þetta eru ekki einhverjir sérvitringar sem búa í kynlífskjallara með rauðum flauelstjöldum og speglum í loftinu. Þetta er ósköp venjulegt fólk sem á börn, vinnur sína vinnu, fer í Bónus og þarf væntanlega að muna eftir að kaupa klósettpappír eins og við hin.
Ég hef lengi haft áhuga á því hvernig fólk skilgreinir mörk sambanda sinna. Hvað telst tryggð? Hvað er framhjáhald? Hver ákveður hvað sé eðlilegt í kynlífi og hvers vegna erum við svona upptekin af því hvað annað fólk gerir í svefnherberginu?
Eða í þessu tilfelli, utan svefnherbergisins.
Forvitnin varð að lokum yfirsterkari og ég ákvað að fara á stúfana og athuga hvort ég fyndi Íslendinga í swing-lífsstílnum sem væru tilbúnir að segja mér frá reynslu sinni.
Ég komst í samband við hjón sem samþykktu að ræða við mig gegn nafnleynd. Nokkrum persónugreinanlegum atriðum hefur verið breytt til að tryggja að ekki sé hægt að rekja frásögnina til þeirra en sagan er þeirra eigin.
Og ég verð að viðurkenna að samtalið var mun áhugaverðara en ég hafði búist við.
Framhjáhald varð upphafið að einhverju nýju
Það er ákveðin kaldhæðni í því að saga hjóna sem stunda swing skuli byrja á framhjáhaldi.
Hjónin höfðu verið saman í um tuttugu ár þegar konan komst að því að eiginmaður hennar hafði ítrekað myndað tilfinningaleg tengsl við aðrar konur.
Traustið var brotið og hjónabandið komið á þann stað að þau þurftu að ákveða hvort þau ætluðu yfirhöfuð að halda áfram saman.
„Við tókum hjónabandið okkar bókstaflega alveg í sundur og byggðum það upp aftur frá grunni,“ segir konan.
Þau leituðu sér ráðgjafar og fóru að ræða hluti sem höfðu legið ósagðir í sambandinu árum saman. Ekki bara það sem hafði farið úrskeiðis heldur líka hvað þau vildu, hvað þau þráðu og hvað þau höfðu aldrei þorað að segja hvort öðru.
Þar á meðal kynferðislegar fantasíur.
Einn daginn sagði konan eiginmanni sínum að hana langaði að prófa að stunda kynlíf með tveimur karlmönnum.
„Hvernig í fjandanum myndi það eiginlega virka?“ spurði hann.
Góð spurning. Og mögulega ekki sú sem flestir eiginmenn búast við að þurfa að svara yfir kaffibolla.
En í stað þess að afgreiða hugmyndina sem einhverja vitleysu fóru þau að ræða hana. Hvað væri það nákvæmlega sem heillaði hana? Hvernig myndi honum líða? Væri þetta eitthvað sem þau gætu prófað saman?
Þau voru ekki búin að taka ákvörðun um að opna hjónabandið heldur voru þau einfaldlega farin að tala um kynlíf af hreinskilni sem hafði áður vantað.
Og það er kannski merkilegasti hluti sögunnar.
Það sem hafði byrjað með leyndarmálum og brostnu trausti varð að samtali um mörk, langanir og heiðarleika.
Því það er auðvitað grundvallarmunur á því að fara á bak við makann og því að taka sameiginlega ákvörðun um að stunda kynlíf með öðrum.
Annað er trúnaðarbrestur. Hitt getur verið samkomulag.
Fyrsta heimsóknin á kynlífsklúbb
Eftir margar samræður ákváðu hjónin að láta á þetta reyna og heimsækja kynlífsklúbb erlendis.
Nú gæti einhver séð fyrir sér að þau hafi gengið inn eins og þaulvanir þátttakendur í einhverri erótískri kvikmynd. Raunveruleikinn var töluvert hversdagslegri.
„Við vorum bæði skíthrædd. Við vissum ekkert almennilega út í hvað við vorum að fara,“ segir konan og hlær.
„Við ætluðum ekkert endilega að gera neitt með öðrum. Við vildum bara sjá hvernig þetta virkaði,“ bætir eiginmaðurinn við.
Það er reyndar eitthvað ótrúlega mannlegt við þá mynd. Hjón sem hafa verið saman í tvo áratugi, alið upp börn og mætt alls konar áskorunum í lífinu og standa nú saman fyrir utan kynlífsklúbb, stressuð eins og unglingar á fyrsta stefnumóti.
Þau fóru inn, skoðuðu aðstæður og reyndu að átta sig á því hvernig þetta allt saman virkaði.
Seinna um kvöldið fóru þau inn á svæði þar sem gestir gátu stundað kynlíf.
„Ég hugsaði bara, veistu hvað, ég ætla að láta vaða. Svo fór ég úr fötunum og við stunduðum kynlíf þarna saman, með fullt af öðru fólki í kringum okkur.“
Og það var nóg.
Ekkert kynlíf með ókunnugum. Engin dramatísk uppákoma. Bara hjón sem stunduðu kynlíf hvort með öðru, nema í þetta skiptið voru áhorfendurnir aðeins fleiri en venjulega.
Mér finnst þetta ágæt áminning um að swing er ekki eftir uppskrift. Það er ekki þannig að fólk mæti í partí, afhendi úlpuna sína í fatahengið og sé þar með skuldbundið til að sofa hjá einhverjum.
Fólk getur mætt til að spjalla, dansa, fylgjast með, stunda kynlíf með eigin maka eða kanna hvort það hafi áhuga á einhverju meira.
Konan sem gat varla verið nakin fyrir framan eiginmann sinn
Eitt af því sem sat hvað mest í mér eftir samtalið var hvernig konan lýsti breytingunni á eigin líkamsímynd.
Hún hafði lengi glímt við mikla líkamsskömm.
„Ég var með alveg hræðilega líkamsímynd. Mér leið svo illa með sjálfa mig að ég gat varla verið nakin fyrir framan manninn minn. Það þurfti helst að vera alveg slökkt á öllum ljósum.“
Ég held að ótrúlega margar konur þekki þessa tilfinningu, jafnvel þótt þær myndu aldrei sjálfar íhuga að stíga fæti inn á kynlífsklúbb.
Við erum svo margar aldar upp við að líkaminn okkar þurfi að uppfylla einhver ákveðin skilyrði áður en við megum leyfa öðrum að sjá hann.
Maginn má ekki vera of stór. Brjóstin mega ekki hanga. Húðin á helst að vera slétt og guð forði okkur frá því að einhver sjái appelsínuhúðina á lærunum.
Og þegar við erum loksins komnar úr fötunum erum við jafnvel svo uppteknar af því hvernig við lítum út að við gleymum að njóta þess sem er að gerast.
Konan lýsir því hins vegar hvernig upplifun hennar breyttist smám saman.
Frá því að geta varla verið nakin fyrir framan eiginmann sinn, með ljósin slökkt, yfir í að standa nakin fyrir framan fjölda fólks.
„Og þarna stóð ég bara, kviknakin, fyrir framan allt þetta fólk og leið bara ógeðslega vel. Ég hefði aldrei trúað því að ég gæti gert þetta.“
Þetta fannst mér sérstaklega fallegt.
Ekki vegna þess að hún hafi farið úr fötunum fyrir framan ókunnuga heldur vegna þess að hún virtist loksins hafa fengið að upplifa líkama sinn án þess að skammast sín fyrir hann.
Það er auðvitað ekki þannig að ég ætli nú að byrja að ráðleggja skjólstæðingum mínum að skella sér í swing-partí til að vinna á neikvæðri líkamsímynd. En það er áhugavert hvað getur gerst þegar fólk fær að upplifa líkama og kynlíf utan þeirra þröngu hugmynda sem það hefur vanist.
Kannski þarf ekki alltaf að breyta líkamanum. Stundum þarf að breyta því hvernig við horfum á hann.
En hvað með afbrýðisemina?
Ég gat auðvitað ekki sleppt því að spyrja út í afbrýðisemina.
Því eitt er að sitja heima í sófa og fantasera um að makinn stundi kynlíf með einhverjum öðrum. Það er allt annað að standa svo raunverulega í sömu stofu og horfa á það gerast.
Fantasíur eru nefnilega einstaklega þægilegar að því leyti að við stjórnum sjálf handritinu.
Raunveruleikinn er ekki alltaf jafn samvinnuþýður.
Hvað ef makinn virðist njóta sín meira með einhverjum öðrum? Hvað ef hann laðast meira að annarri manneskju? Hvað ef maður verður allt í einu óöruggur, þrátt fyrir að hafa verið sannfærður um að þetta yrði ekkert mál?
Hjónin eru ekkert ónæm fyrir slíkum tilfinningum.
„Auðvitað höfum við orðið afbrýðisöm. Það hafa alveg komið upp aðstæður þar sem annað okkar hefur hugsað: Bíddu, þetta var kannski ekki alveg eins og ég bjóst við.“
Og það fannst mér eiginlega hressandi að heyra.
Því stundum er talað um fólk í opnum samböndum eins og það hafi einhvern veginn þróast upp úr afbrýðisemi. Eins og það sé komið á eitthvert æðra stig tilfinningalegrar uppljómunar þar sem enginn verði nokkurn tímann óöruggur.
En afbrýðisemi er mannleg tilfinning. Hún hverfur ekki sjálfkrafa þótt fólk ákveði að stunda kynlíf með öðrum.
Það sem skiptir máli er hvernig brugðist er við henni.
Eiginmaðurinn segir þau hafa lært að þekkja mörk hvort annars og vera vakandi fyrir líðan makans.
„Ef annað okkar vill ekki gera eitthvað, þá gerum við það ekki. Það þarf ekkert að vera flóknara en það.“
Þetta hljómar einfalt. Og í grunninn er það einfalt.
En við sem vinnum við sambandsráðgjöf vitum líka að það getur reynst fólki ótrúlega erfitt að segja nei, jafnvel í hefðbundnum samböndum þar sem enginn annar kemur nálægt rúminu.
Það þarf ákveðið öryggi til að geta sagt við makann sinn að maður sé óöruggur, afbrýðisamur eða hafi einfaldlega skipt um skoðun.
Og það þarf ekki síður öryggi til að geta tekið slíku svari án þess að fara í fýlu, þrýsta á makann eða láta hann fá samviskubit.
Frá hópkynlífi í hópútilegur
Það kom mér líka skemmtilega á óvart hversu mikið hjónin töluðu um félagslega þáttinn í lífsstílnum.
Því þegar við heyrum orðið swing sjáum við líklega flest fyrir okkur rúm, nakta líkama og alls konar kynlífsathafnir. Við sjáum ekki fyrir okkur útilegur og gítarglamur við varðeldinn.
„Við höfum eignast góða vini í gegnum þetta. Fólk heldur kannski að þetta snúist bara um kynlíf, en við hittum þetta fólk líka bara í mat, förum í útilegur og gerum venjulega hluti saman.“
Þetta er eiginlega dásamlega íslenskt.
Fólk sem hittist í kynlífsklúbbi getur sem sagt líka hist yfir grillmat og rætt veðrið, ferðalögin og hvort það eigi að rigna um verslunarmannahelgina.
Kannski er það einmitt það sem okkur finnst svo erfitt að ímynda okkur. Að fólk sem stundar kynlíf með öðrum geti líka verið ósköp venjulegt fólk með ósköp venjuleg áhugamál.
Við viljum gjarnan setja fólk í ákveðin hólf.
Þeir sem stunda swing hljóta að vera einhverjir sérstakir kynlífsfíklar. Þeir sem eru í opnum samböndum hljóta að vera óhamingjusamir með makann sinn. Og þeir sem vilja ekki kynlíf með öðrum en maka sínum eru gamaldags.
Ekkert af þessu þarf að vera rétt. Fólk er einfaldlega mismunandi.
Hvar liggja mörkin milli fantasíu og veruleika?
Sem sambands- og kynlífsráðgjafi finnst mér sérstaklega áhugavert hvernig þessi hjón hafa þurft að endurskoða hugmyndir sínar um tryggð.
Því við tölum oft um einkvæni eins og það sé sjálfgefið að allir skilji það á sama hátt.
En hvað felst nákvæmlega í því að vera trúr?
Er það að stunda ekki kynlíf með öðrum? Að mynda ekki tilfinningaleg tengsl við aðra? Að senda ekki ótvíræð sms? Að horfa ekki á klám? Að fantasera ekki um aðra manneskju?
Flest pör hafa einhverjar hugmyndir um þetta en fá þeirra hafa í raun sest niður og rætt mörkin sín í smáatriðum.
Við gerum bara ráð fyrir að makinn sé með sömu reglubók og við sjálf.
Svo kemur kannski í ljós, mörgum árum síðar, að við vorum alls ekki að spila eftir sömu reglum.
Það sem mér finnst athyglisvert við sögu þessara hjóna er að þau fóru ekki að stunda swing vegna þess að þau hefðu misst áhugann hvort á öðru. Þau lýsa því þvert á móti hvernig þau fóru að ræða kynlíf, fantasíur og mörk af meiri hreinskilni.
Það þýðir auðvitað ekki að swing sé einhver leynileg uppskrift að góðu hjónabandi.
Og ég myndi seint ráðleggja pari sem er í miðri sambandskreppu að leysa málin með því að bæta þriðju manneskjunni í rúmið.
Það er nógu erfitt að vinna úr brostnu trausti milli tveggja einstaklinga án þess að bæta fleiri kynfærum við jöfnuna.
Swing lagar ekki framhjáhald. Það lagar ekki samskiptavanda og það lagar ekki samband þar sem annar aðilinn er stöðugt að ganga á mörk hins.
En það er heldur ekkert sem segir að kynferðisleg einkvæni sé eina leiðin til að eiga gott, traust og ástríkt samband.
Það sem skiptir máli er að báðir aðilar séu raunverulega sáttir við fyrirkomulagið, geti sett mörk og treyst því að þau verði virt.
Og að hvorugur sé að samþykkja eitthvað af ótta við að missa hinn.
Er swing fyrir alla?
Nei, auðvitað ekki.
Það er alveg jafn eðlilegt að vilja aldrei stunda kynlíf með neinum öðrum en makanum sínum og að vera forvitinn um að kanna eitthvað utan þess ramma.
Við þurfum heldur ekki að framkvæma allar fantasíur okkar.
Sumar fantasíur eru einfaldlega skemmtilegri í huganum en í raunveruleikanum. Og sumar eiga kannski bara heima þar.
Það er ekkert að því.
Mér finnst hins vegar að við mættum almennt vera duglegri að ræða kynlíf án þess að fara strax í vörn eða dæma langanir annarra.
Það er hægt að hlusta á fantasíu makans án þess að samþykkja að framkvæma hana. Það er hægt að vera forvitinn án þess að vilja prófa. Og það er hægt að segja nei án þess að þurfa að réttlæta það í löngu máli.
Þegar ég hugsa til baka um samtalið við hjónin er það nefnilega ekki kynlífsklúbburinn sem stendur mest upp úr.
Ekki heldur hugmyndin um tvo karlmenn eða það að konan hafi staðið nakin fyrir framan fullt af fólki.
Það er sú staðreynd að eftir tuttugu ára samband, brostið traust og mikla erfiðleika virðast þau hafa fundið leið til að tala saman um hluti sem þau höfðu áður ekki þorað að nefna.
Og kannski getum við hin lært eitthvað af því, jafnvel þótt við höfum nákvæmlega engan áhuga á swing.
Því það þarf ekki að fara í kynlífsklúbb til að spyrja makann sinn hvað hann langar í.
Það má alveg byrja heima í sófa.
Ekki dæma bókina eftir bólfélögunum
Ég held að ein stærsta ástæðan fyrir því að okkur finnst swing svona spennandi umræðuefni sé að við ímyndum okkur að fólkið sem stundar það sé svo ólíkt okkur sjálfum.
Að þetta sé einhver dularfullur neðanjarðarheimur þar sem fólk lifir allt öðruvísi lífi en við hin.
En swingerarnir í næsta húsi gætu alveg verið hjónin sem þú hittir í Bónus á laugardögum. Foreldrarnir sem standa við hliðina á þér á fótboltavellinum. Hjónin sem bjóða þér í kaffi á sunnudögum og kvarta yfir fasteignagjöldunum.
Þau gætu meira að segja verið fólkið sem þú fórst með í síðustu útilegu.
Og kannski er það einmitt það sem gerir þetta svo skemmtilegt.
Við vitum nefnilega yfirleitt ótrúlega lítið um kynlíf annarra, þótt við teljum okkur vita nákvæmlega hvernig það eigi að vera.
Persónulega finnst mér það bara ágætt.
Því svo lengi sem allir sem taka þátt eru fullorðnir, samþykkir og mörk þeirra virt, sé ég enga ástæðu til að hafa sérstakar áhyggjur af því hvað annað fólk gerir í svefnherberginu.