„Allt tekur enda um síðir,“ skrifar Jama á Instagram er hún tilkynnti brottför sína af ástareyjunni. Hún þakkar aðdáendum sínum innilega og segir þættina tilheyra þeim sem horfa á þá ár eftir ár.
Hún hóf störf við að stýra þáttunum 28 ára gömul og hefur fylgt þeim í níu þáttaraðir, frá því í október 2022.
Þurfi að taka stökkið öðru hverju
„En ég hef alltaf trúað því að til þess að vaxa þurfi maður að taka stökkið öðru hvoru og nú er minn tími kominn til að henda mér út í eitthvað nýtt,“ skrifar Jama.
„Þótt mitt eigið Love Island-ferðalag sé á enda óska ég þættinum og teyminu alls hins besta, ég mun hvetja ykkur áfram af hliðarlínunni að eilífu.“
Jama er ein þekktasta sjónvarpsstjarna Bretlands og tók nýverið þátt í nýjustu seríu raunveruleikaþáttanna Celebrity Traitors sem sýnd var í breska ríkissjónvarpinu og naut mikilla vinsælda. Að auki var hún kynnir söngvaþáttarins The Masked Singer.
Raunveruleikaþættirnir Love Island hófu göngu sína á bresku sjónvarpsstöðinni ITV árið 2005 og ganga þættirnir út á að hópur ungs fólks dvelur saman á eyju þar sem því er falið að finna ástina, með tilheyrandi usla.