Er þetta meðal þess sem kom fram í stjórnmálaályktun Framsóknar en miðstjórnarfundur flokksins fór fram á Laugarbakka um helgina. Þá segir í ályktuninni að tvö mikilvæg ár hafi glatast í baráttu við verðbólgu og hátt vaxtastig. Ekki megi rétta af ríkisfjármálin með veiklun fjárhagslegs öryggis landsmanna né atvinnulífsins en jafnvægið sé að finna í skýrri forgangsröðun.
Óverjandi að ríkið hafi ekki staðið við samninga sem hafi verið gerðir
Framsókn segist hafna „fjársveltisstefnu“ ríkisstjórnarinnar gagnvart farsæld barna og krefst þess að ríkið tryggi sveitarfélögum landsins fjármagn til að veita börnum nauðsynlegan stuðning.
„Það er með öllu ótækt og óverjandi að ríkisstjórnin standi ekki við þá samninga sem gerðir hafa verið, ekki síst vegna barna með fjölþættan vanda.“
Óboðlegt sé að fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir leggist þyngst á tekjulágar fjölskyldur landsins og leggur Framsókn til að hækkanir kílómetragjalds, krónutölugjalda og kolefnisgjalds verði takmarkaðar við 2,5 prósent.
„Framsókn skorar á stjórnvöld að birta heildarmat á áhrifum skatta, gjalda og skerðinga eftir tekjum, fjölskyldugerð og búsetu áður en ákvarðanir eru teknar.“
Hafna „Bláskógarskatti“
Miðstjórnin skorar á stjórnvöld að endurskoða fyrirhugaðar breytingar á Loftbrú sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur lagt fram en núverandi fyrirkomulag sé mikilvægt jöfnunarúrræði fyrir íbúa landsbyggðarinnar.
Framsókn vilji að virðisaukaskattur á baðlón haldist í 11 prósentum. Þá leggst stjórnin gegn aukinni skattheimtu á ferðaþjónustu og hafnar svokölluðum Bláskógarskatti. Landsvirkjun skuli áfram vera í þjóðareign og krefst stjórnin gagnsæis um kostnað opinberra ákvarðana.