Fjölmiðlar sem eru tengdir Hútum segja 33, hið minnsta, hafa verið drepna í loftárásum Sádi-Araba í Jemen í dag.
Meðal látinna eru konur og börn.
Hátt í fjörutíu særðust í árásunum.
Vopnahléi milli Húta og bandalags undir stjórn Sádi-Araba lauk í júní. Bandalagið styður ríkisstjórnina í Jemen en Hútar njóta stuðnings Írana.
Hútar segja Sádi-Araba ábyrga
Al Masirah, sjónvarpsstöð á vegum Húta, hefur birt myndir og myndskeið sem sýna björgunarfólk draga lík úr rústum húsa í bænum al-Shariyah, sem er austur af höfuðborginni Sanaa.
Sjónvarpsstöðin, ásamt fréttastofunni Saba, segir Sádi-Araba bera ábyrgð á árásunum.
Sádí-Arabía hefur barist gegn Húta-hreyfingunni í yfir áratug, með stuðningi stjórnvalda í Jemen.
Bandalagið hefur ekki lýst yfir ábyrgð á árásunum.
Hútar í Jemen hafa gert skipulagðar árásir á flugvelli í Sádi-Arabíu undanfarið.
Mannskæðasta árásin var þegar tólf voru drepnir og yfir 300 særðust á alþjóðaflugvellinum í Riyadh 11. október.
Yfir þrjú hundruð þúsund þurft að yfirgefa heimili sín
Sameinuðu þjóðirnar segja að hátt í tvö þúsund hafi verið drepin frá því átökin blossuðu upp á ný í sumar þegar vopnahlénu lauk.
Yfir þrjú hundruð þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín.
Aðeins nokkrum klukkustundum áður en loftárásin átti sér stað í al-Shariyah greindi hernaðarbandalagið undir forystu Sádi-Arabíu frá því að það hefði grandað eldflaug sem stefndi í átt að höfuðborginni Riyadh.