Þetta segir Jónas Hallgrímur Ottósson í samtali við fréttastofu en aðgerðum á slysstað er nýlokið. Jónas gat ekki sagt til um ástand farþeganna í bílnum en annar þeirra var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús en hinn með sjúkrabíl.
„Við vitum að bíllinn fór út af og lenti úti í á. Annar farþega komst út af sjálfsdáðum, hinn var fastur í vatninu,“ sagði Jónas Hallgrímur við fréttastofu.
Er vitað hversu lengi hann var fastur í bílnum?
„Ég get ekki sagt nákvæmlega hve lengi, en það var töluverður tími.“
Nú taki við rannsókn á slysinu en tildrög þess eru óljós. Engin hálka var á vettvangi enda hitastig það hátt. Aðstæður voru engu að síður erfiðar.
„Það var kalt, blautt og erfitt,“ segir Jónas.
Veistu meira um málið og áttu myndir? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Veistu meira um málið og áttu myndir? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.