En nú okkur sjálf!
Allt í einu er til dæmis kominn nóvember. Hvernig gerðist það?
Var árið ekki bara rétt að byrja?
Og hvers vegna er alltaf föstudagur?
Það er reyndar mjög áhugavert að rýna í hvað vísindin segja um þetta. Því það er engin ímyndun í okkur að finnast tíminn stundum vera að stinga okkur af.
Nokkur dæmi um kenningar:
#1: Hlutfallskenningin
Sálfræðingurinn Claudia Hammond telur hluta af skýringunni vera þessa:
Hjá 10 ára gömlu barni er eitt ár 10% af ævinni. Hjá fimmtugum einstaklingi er eitt ár 2%, sem þýðir að árið verður einfaldlega minni sneið af kökunni eftir því sem við eldumst.
#2: Hægari heili
Adrian Bejan, prófessor við Duke-háskóla, lagði fram þá kenningu fyrir nokkrum árum að þegar taugabrautirnar okkar eldast berast merkin til heilans einfaldlega hægar en áður. Heilinn vinnur þá úr færri „myndum“ á sama tíma.
Dæmi: Börn hreyfa augun oftar og taka því „inn“ meira, dagurinn þeirra virðist því lengri. Eftir fimmtugt gerist þetta hægar, við tökum minna inn og dagurinn virðist því styttri.
#3: Rútínan
Þetta er sú kenning sem við höfum mest vald yfir. Heilinn geymir nýja reynslu en ekki endurtekna. Þriðjudagur sem líkist síðasta þriðjudegi rennur saman í eina þokukennda minningu og þegar við lítum til baka virðist tíminn hafa horfið.
Claudia Hammond kallar þetta fríþversögnina. Gott frí flýgur áfram því það er svo mikið að gerast, en þegar heim er komið virðist það hafa tekið heila eilífð því minningarnar eru svo margar.
Þess vegna eru unglings- og tvítugsárin líka svo stór í minningunni. Allt var fyrsta skiptið: fyrsta ástin, fyrsta íbúðin, fyrsta utanlandsferðin.
Góðu fréttirnar eru þær að við getum gert tímann „lengri“ í minningunni. Hér eru hugmyndir:
#1: Gerðu eitthvað í fyrsta sinn í hverjum mánuði. Nýjan veitingastað, nýja gönguleið, námskeið eða sjósund.
#2: Breyttu rútínunni. Farðu aðra leið í vinnuna eða í heimsókn til ættingja. Nýjungarnar þurfa ekki að vera stórar.
#3: Ferðastu. Ferðalög búa til fjölda nýrra minninga á stuttum tíma.
#4: Taktu meira eftir. Til dæmis með því að taka mynd eða skrifa niður eitt atriði úr deginum. Þá rennur hann síður saman við þann næsta.
P.s. Ef þú ert að lesa þetta á sunnudagskvöldi er mánudagur líklega kominn áður en þú veist af.
Allt í einu er til dæmis kominn nóvember. Hvernig gerðist það?
Var árið ekki bara rétt að byrja?
Og hvers vegna er alltaf föstudagur?