Mikið tómahljóð var á miðflokksfundi Framsóknar sem haldinn var um helgina á Laugarbakka. Lilja Alfreðsdóttir, formaður flokksins og fyrrum þingmaður, flutti ræðu sem var full af innantómum upphrópunum sem engin innstæða er fyrir. Það er sorglegt fyrir flokkinn að hann hafi ekkert fram að færa nema slúður þegar kjörtímabil núverandi ríkisstjórnar er hálfnað. Framsókn galt afhroð í síðustu kosningum, missti þá átta þingmenn og fékk einungis fimm menn kjörna á þing.
Orðið á götunni: Framsókn skilar auðu eftir miðstjórnarfund – flokkurinn gæti þurrkast út af þingi