Silfrastaðakirkja var byggð árið 1896, fyrir hundrað og þrjátíu árum, og var friðuð árið 1990. Kirkjan er merkileg fyrir margar sakir og stendur Skagfirðingum afar nærri.
Kirkjan skrapp í viðgerð haustið 2021 og nú, fimm árum síðar, er hún komin heim. Einhverjir sveitungar höfðu áhyggjur af því að hún myndi aldrei snúa til baka.
Viðgerðin kostaði um 70 milljónir og enn eru nokkur handtök óunnin.