Sigurjón greinir frá þessu í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum. Hann segir að fyrir nokkrum vikum hafi hann fengið verk í síðuna. Við skoðun hafi strax orðið ljóst að eitthvað alvarlegt væri á seyði.
„Nú er ljóst að ég er með krabbamein, sarkmein. Til lukku þá er staðfest er að meinið hefur ekki dreift sér og er þarna bara til verulegs ófriðar í síðunni á mér. Það eru einnig góð tíðindi að meinið telst vera skurðtækt og stefnt er að uppskurði þegar allar greiningar liggja fyrir, vonandi á allra næstu vikum.“
Hann segist vera með mikinn verk í meininu sjálfu. Þess vegna sé hann að mestu bundinn við rúm og sófa. Þess utan sé hann hraustur og líði bærilega miðað við allt og allt.
„Síðustu vikur hafa verið okkur fjölskyldunni mjög krefjandi. Við erum umvafinn fólkinu okkar og vinum og erum eins reiðubúinn að takast á við þetta og hægt er. Þá hafa vinnuveitendur mínir í þingflokki Viðreisnar sýnt mér mikinn stuðning og hlýju.“
Hann segir að sér hafi borist mikið af kveðjum. Hann kveðst þakklátur fyrir það en orkustigið hafi ekki gefið honum kost á að svara þeim öllum. Sigurjón tekur fram að kveðjurnar skipti hann miklu máli og veiti honum kraft.