Skipulags- og framkvæmdaráð í Norðurþingi hefur lagt til að fyrirtæki sem vill byggja gagnaver fái úthlutaða lóð á Bakka, norðan Húsavíkur. Fyrirtækið hefur eins óskað eftir því að grafa rannsóknarholur á Bakka í nóvember.
Greinilegur vilji er meðal sveitarstjórnarfólks í Norðurþingi til þess að reisa þar gagnaver og viðræður hafa staðið yfir við tvö fyrirtæki um að hefja starfsemi á Bakka: Giga42 og Eyrie DC, í eigu Akur Capital.
Forsvarsmenn Eyrie DC vilja byrja að byggja sem fyrst og nú virðist styttast í að þeir geti fari að munda skófluna. Framkvæmda- og skipulagsráð hefur lagt til að fyrirtækið fái rúmlega átta hektara lóð á Bakka, en sveitarstjórn þarf svo að samþykkja það á næsta fundi sínum, síðar í mánuðinum.
Þorsteinn Snævar Benediktsson, formaður skipulagsráðs, segir enn töluvert eftir af ferlinu.
„Fyrirvararnir eru til dæmis raforkusölusamningur. Svo erum við náttúrulega með fyrirvara um skipulagið“, segir Þorsteinn.
Hægt að gera athugasemd við skipulagið til 7. des
Og opið er fyrir athugasemdir um nýtt deiliskipulag á Bakka til 7. desember. En fari það í gegn má segja að komið sé grænt ljós frá sveitarfélaginu.
En þá á eftir að semja við orkufyrirtæki, hvort þeir fái alla þá orku sem þarf í þetta gríðarstóra gagnaver. RÚV hefur greint frá því að Microsoft sé væntanlegur viðskiptavinur gagnaversins, en forsvarsmenn þess hafa ekki viljað staðfesta það.
Næst á dagskrá er að Eyrie DC grafi 41 rannsóknarholu á Bakka, að öllum líkindum eftir helgina.
„Þeir eru að vinna sér í haginn upp á að vita bara hvað er þarna undir, hvaða jarðvegur það er og hve langt er niður á fast, geri ég ráð fyrir. Til að þeir séu bara klárir í að reisa byggingar þegar að því kemur, ef að því kemur.“