Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að virðing fyrir dýrum og velferð þeirra sé grundvallaratriði í ábyrgri matvælaframleiðslu. Fyrir kjötiðnaðarmenn sé fagmennska í greininni nátengd því að vel sé farið með dýr á öllum stigum framleiðslunnar. Óviðunandi aðbúnaður og meðferð dýra eigi þar ekkert erindi og grafi undan trausti almennings á greininni allri.
„Tryggja þarf að eftirlitsaðilar hafi nægilegt fjármagn, mannafla og úrræði til að sinna hlutverki sínu, fylgja athugasemdum eftir og knýja fram úrbætur. Frásagnir fyrrverandi eftirlitsdýralæknis af því að endurteknar athugasemdir við aðbúnað dýra hafi verið gerðar án fullnægjandi úrbóta kalla á sérstaka skoðun,“ segir í tilkynningu.
„Það nægir ekki að eftirlit fari fram; tryggja verður að athugasemdum sé fylgt eftir og úr annmörkum bætt. Mikilvægt er að rannsókn á málinu leiði í ljós hvernig aðbúnaði og umönnun dýranna hefur verið háttað. Ábyrgð á viðunandi aðbúnaði og starfsháttum hvílir á stjórnendum og rekstraraðilum. Dýravaelferð verður að vera í fyrirrúmi í íslenskri matvælaframleiðslu. Neytendur og fagfólk eiga að geta treyst því að þeirri kröfu sé fylgt eftir í verki.“