Að vera virkur þátttakandi í mótun framtíðar
Guðrún Schmidt skrifar um menntun til sjálfbærni og hvernig Grænfánastarfið getur virkjað nemendur til þátttöku í umhverfis- og loftslagsmálum.
Umhverfis- og loftslagsmál eru meðal stærstu áskorana samtímans. Hvernig getum við undirbúið börn og ungmenni fyrir framtíðina og hjálpað þeim að takast á við þessar áskoranir? Menntun til sjálfbærni er kennslufræðileg nálgun til að gera nemendum kleift að bregðast við þessum áskorunum á valdeflandi og skapandi hátt og taka virkan þátt í mótun nú- og framtíðar. Hún hjálpar nemendum að efla hæfni sína og trú á eigin getu til að stuðla að jákvæðum breytingum.
Við fullorðna fólkið berum ábyrgð á aðgerðum í umhverfis- og loftslagsmálum en þurfum líka að gefa ungu fólki rödd og tækifæri til þátttöku. Skólar gegna þar mikilvægu hlutverki. Þeir eiga að sýna gott fordæmi auk þess að hvetja nemendur sína til dáða og kenna þeim að þeir geti sjálfir verið hluti af lausnunum. Við erum að undirbúa ungu kynslóðina fyrir líf í heimi sem við þekkjum ekki enn. Þess vegna er mikilvægt að þau læri að hugsa skapandi, finna nýjar leiðir og trúa því að þau geti haft jákvæð áhrif á framtíðina.
Grænfáninn – frá hugmyndum til aðgerða
Grænfánaverkefnið er einmitt vettvangur þar sem nemendur eru ekki bara að læra um umhverfis- og loftslagsmál og sjálfbæra þróun heldur fá einnig rödd og geta haft áhrif. UNESCO hefur nefnt Grænfánann sem helsta verkfærið til innleiðingar á menntun til sjálfbærni í heiminum. Grænfáninn er alþjóðlegt verkefni undir heitinu Eco-Schools, á vegum samtakanna „Foundation for Environmental Education“. Verkefnið er starfrækt í yfir 54.000 skólum í meira en 100 mismunandi löndum víðs vegar um heiminn. Hér á landi heldur Landvernd utan um verkefnið og taka um 170 skólar þátt, á öllum skólastigum um land allt. Kjarni Grænfánastarfs er þátttaka nemenda. Í umhverfisnefnd velja þeir sér viðfangsefni, kanna stöðuna í skólanum, setja sér markmið og ákveða aðgerðir. Þannig fá þeir tækifæri til að hafa áhrif á skólastarfið og leiða breytingar í samstarfi við aðra.
En hvernig birtist grænfánastarfið í daglegu skólastarfi?
Í leikskólanum
Grænfánastarf í leikskóla einkennist meðal annars af því að börnin læra að fara vel með mat, vatn og rafmagn. Börnin eru mikið úti, kynnast nærumhverfi, rækta grænmeti, leika sér með vatn og jarðveg og skoða lífríkið í kringum sig. Þau læra hvaðan maturinn kemur, hvernig mold verður til og hvers vegna plast á ekki heima í náttúrunni. Þegar skólinn fær nýjan Grænfána sem viðurkenningu fyrir vel unnið Grænfánastarf er slegið upp hátíð. Foreldrar og fulltrúar sveitarfélagsins koma saman með börnunum og fagna árangrinum. Þannig finna börnin að það sem þau gera skiptir máli. Þau fá hrós fyrir að hugsa vel um náttúruna og læra að það er bæði mikilvægt og eftirsóknarvert að leggja sitt af mörkum.
Í grunnskólanum
Í grunnskóla getur Grænfánastarfið orðið sýnilegur hluti af öllu skólastarfinu. Umhverfissáttmáli hangir á veggjum, nemendur skapa listaverk úr endurnýtanlegum efniviði og skiptimarkaðir gefa hlutum nýtt líf. Daglegar venjur verða sjálfsagðar eins og að taka þátt í að minnka matarsóun, flokka úrgang, plokka rusl, fara vel með vatn og rafmagn, rækta grænmeti og efla útikennslu. Samgöngusáttmáli getur líka hvatt fleiri til að ganga eða hjóla í skólann. Á þemadögum vinna nemendur að umhverfismálum á skapandi og lausnamiðaðan hátt.
Þegar Grænfáninn er afhentur kemur skólasamfélagið saman til að fagna. Nemendur úr umhverfisnefnd halda ræður um umhverfismál út frá eigin brjósti og segja frá Grænfánastarfinu. Þetta eru dýrmæt augnablik. Nemendur finna hversu mikilvægt hlutverk það er að hugsa vel um náttúru og umhverfi, að þátttaka þeirrar skiptir máli og að þau geta haft áhrif á umhverfið sitt.
Í framhaldsskólum
Í framhaldsskólum getur verið flóknara að virkja allt skólasamfélagið, en leiðirnar eru margar. Sumir skólar ná að flétta efni um þema Grænfánastarfs inn í flesta áfanga, aðrir eru með sérstakan áfanga í kringum Grænfánastarfið. Nemendur eru virkjaðir til að kynna sér umhverfismál með gagnrýnum hætti og miðla upplýsingum á fjölbreyttan og skapandi hátt, m.a. með þátttöku í verkefninu Umhverfisfréttafólk. Flestir skólar nota þemadaga til þess að vinna á skapandi, þverfaglegan og uppbyggilegan hátt að ýmsum umhverfismálum. Svo eru það ekki síst hugmyndir nemenda um aðgerðir og/eða fræðslu sem fá brautargengi í gegnum Grænfánastarfið. Slíkt eykur bæði áhuga nemenda og trú á eigin getu.
Í háskólum
Grænfánastarf í háskólum getur einnig tekið á sig fjölbreyttar myndir. Fataskiptimarkaður, frískápur, deilihjól, gróðursetning eða strandhreinsun eru fáein dæmi. Umhverfisnefndir geta t.d. stuðlað að því að húsgögn og búnaður séu endurnýtt og gerð upp í stað þess að þeim sé hent. Þær geta skipulagt viðburði, fræðslu og ráðstefnur eða hvatt nemendur og kennara til að velja sér viðfangsefni á umhverfis- og loftslagssviðinu. Stundum kvikna stærri verkefni út frá litlum hugmyndum. Framtak nemenda getur til dæmis leitt til sjálfboðaliðastarfs, átaks í úrgangsmálum eða meistaraverkefnis um mengun í hafi. Þannig getur Grænfáninn orðið uppspretta nýrra hugmynda og raunverulegra breytinga.
Að festa í sessi nýjar venjur í þágu umhverfis
Þegar skóli vinnur markvisst að menntun til sjálfbærni eins og í gegnum Grænfánann verður það smám saman hluti af daglegu skólastarfi. Þverfagleg menntun um umhverfis-, loftslags- og sjálfbærnimál fléttast inn í kennsluna, ákvarðanir og samskipti. Nemendur og starfsfólk vinna saman að sameiginlegum markmiðum og finna leiðir til að gera betur. Sjálfsagt er að flokka, fara vel með auðlindir, hugsa gagnrýnið og taka þátt í lausnum á uppbyggjandi hátt.
Sem menntaverkefni er Grænfáninn svo ekki síst mikilvægt verkfæri til að efla þátttöku, frumkvæði og lýðræðislega hugsun. Hann gefur nemendum tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri og sjá þær verða að veruleika. Þetta skiptir ekki aðeins máli fyrir umhverfið. Þegar börn og ungmenni finna að þau geta haft áhrif geta þau líka fundið meiri von og tilgang. Það getur hjálpað þeim að takast á við áhyggjur af loftslagsbreytingum og öðrum áskorunum samtímans. Þau upplifa að þau geti tekið virkan þátt í að breyta heiminum með því að byrja strax, í skólanum sínum, nærumhverfinu og samfélaginu. Þannig getur unga fólkið fundið að það getur mótað framtíðina.
Höfundur er sérfræðingur í menntateymi hjá Landvernd