Afmælishátíðin hófst á fimmtudaginn og er síðasti dagur veislunnar í dag en um leið aðaldagurinn. Davíð Lúther Sigurðarson, markaðsstjóri miðbæjarins á Selfossi, segir mikið um að vera á svæðinu í dag.
„Núna er bara lokahnykkurinn. Það er búin að vera afmælisveisla hérna hjá okkur í miðbænum á Selfossi og byrjað á fimmtudaginn. Þá var kósíkvöld og voru allir veitingastaðir og verslanir með afslætti. Þetta er svona árlegur viðburður hjá okkur, kósíkvöldið. En nú er miðbær Selfoss fimm ára og við erum bara að henda í alvöru afmælisveislu og það er búið að vera frábært hérna þessa síðustu daga. Það er alls konar hér fyrir börnin og bara alla markhópa.“
Frítt verður fyrir börn í hringekju frá klukkan eitt í dag til átta í kvöld. Þá mun Valdimar Bragason, leiðsögumaður og fyrrum prentari, leiða nokkrar sögugöngur um svæðið yfir daginn og hefst sú fyrsta klukkan eitt.
Klukkan þrjú mun fimm ára Selfyssingur skera fimm metra langa afmælistertu.
„Þannig að þetta er jafnaldri miðbæjarins og allir bara velkomnir í ókeypis köku og kaffi. Svo eru allar verslanir með alls konar húllumhæ hjá sér og bara tilboð úti um allt þannig að þetta eru búnir að vera frábærir dagar.“
Hann hvetur fólk til að gera sér ferð á Selfoss.
„Já, það tekur ekki nema 45 mínútur að keyra yfir heiðina og það er fínasta veður þannig að ég hvet bara fólk til að fara á laugardagsrúnt og kíkja á okkur. Það er nóg um að vera fyrir alla.“