Jóhann R. Benediktsson, fyrrverandi sýslumaður á Keflavíkurflugvelli segist hafa verið undir þrýstingi að handtaka Jón Ásgeir Jóhannesson eftir lendingu á Keflavíkurflugvelli í ágúst árið 2002. Ætti að setja hann í járn fyrir framan myndavélar sjónvarpsstöðvanna. Það hafi hann neitað að gera og lýsti vanþóknun sinni á.„Þetta hefur alla tíð setið í mér,“ segir Jóhann í nýrri bók Reynis Traustasonar og Jóns Trausta Reynissonar um Davíð Oddsson, Davíðstíminn: Sjálfstæð saga leiðtoga og lands.
Jóhann neitaði að taka þátt í hannaðri atburðarás - „Þetta hefur alla tíð setið í mér“