Viðræður milli Tækniskólans og Reykjavíkurborgar ganga vel og skólinn er sáttur við framgang sveitarfélagsins, segir Egill Jónsson stjórnarformaður Tækniskólans. Viðræðurnar taki þó tíma en borgin virðist setja „mikinn kraft og dugnað“ í viðræðurnar.
Tækniskólinn sé einungis í viðræðum við Reykjavíkurborg enda sé hún raunhæfasti kosturinn til að hýsa skólann og enn séu Úlfarsárdalur og Keldnaholt álitlegustu staðirnir. Skólinn hafi átt í samtali við borgina um að finna svæði meira miðsvæðis í Reykjavík en það hafi ekki tekist enda um stóra byggingu að ræða sem rúmist ekki hvar sem er. Aðrir kostir séu því ekki á borðinu eins og er.
„Við erum eingöngu í viðræðum við Reykjavíkurborg. Það var langbesti kosturinn. Þetta er náttúrulega ekki ókeypis fyrir sveitarfélögin heldur að koma að þessu verkefni og Reykjavíkurborg er stærsta sveitarfélagið og með raunhæfasta kostinn. Ég hef trú á að það muni skila lendingu og að skólinn verði byggður Reykjavík en allur er nú varinn góður.“
„Þokkalega bjartsýnn“ á að samkomulag verði siglt í höfn á næstu vikum
Hann segist bjartsýnn á að samkomulag við Reykjavíkurborg náist á næstu vikum.
„Við viljum klára þetta á næstu vikum. Þær gætu verið fjórar til sex vikur. Þá vildum við gjarnan geta bara komið þessu alla leið í höfn með undirritaðan samning og getum þá farið að bretta upp ermar aftur.“
Eruð þið bjartsýn á að það náist?
„Já, við erum þokkalega bjartsýn á það. Auðvitað gæti það tekið lengri tíma. Við vitum það bara hreinlega ekki en miðað við ganginn í þessu þá erum við ágætlega bjartsýn á það.“
Fjölmörg sveitarfélög hafa lýst yfir áhuga á að hýsa Tækniskólann, þar á meðal Akureyrarbær. Egill segir óraunhæft að leita að lóð fyrir skólann utan höfuðborgarsvæðisins.
„Eiginlega handviss“ um að sátt náist þó að illa hafi farið
Þá hefur Tækniskólinn krafið Hafnafjarðarbæ um bætur eftir að Hafnafjarðarbæ tókst ekki að úthluta skólanum lóð eins og stóð til. Rúv greindi fyrst frá.
Egill segir kröfuna upp á tugi milljóna en geti ekki gefið upp nákvæma upphæð en hún sé trúnaðarmál. Krafan hafi nokkurn veginn legið fyrir frá upphafi og hafi verið rædd óformlega áður en hún var formlega sett fram „með viðeigandi rökstuðningi.“
Hann segist vongóður og „eiginlega handviss“ um að sátt náist á milli bæjarins og skólans sem standi nú í viðræðum þó að illa hafi farið þar á milli. Það hafi legið fyrir frá upphafi að ræða þyrfti tjónið sem skólinn varð fyrir þegar samkomulag Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans fór út um þúfur.
„Þó að þetta hafi farið svona illa í Hafnarfirði þá erum við ekki með neinn hasar og læti og höfum alveg sagt frá upphafi: Heyrðu, við þurfum að ræða tjónið sem að alveg borðliggjandi í sambandi við þetta. Þeir hafa alveg skilning á því og eru ekkert að hlaupa í burtu frá þessu.“
Tveggja ára vinna hafi farið forgörðum
Tjónið liggi í tveggja ára vinnu skólans í kringum flutningana sem hafi farið forgörðum. Viðamikil hönnunarvinna og útboð á hönnun hafi átt sér stað sem þurfi nú að endurtaka að mestu leyti. Skólinn komist því ekki hjá því að krefja bæinn um bætur.
„Við reynum auðvitað að vera hófstillt í mati okkar á tjóninu sem við urðum fyrir og það hefur alltaf verið gott samtal við Hafnarfjörð þrátt fyrir þessa uppákomu.