Staðan í stjórnarmyndunarviðræðum í Svíþjóð hefur verið algjörlega læst síðan í kosningunum þann 13. september. Þar missti ríkisstjórn hægri flokkanna meirihluta sinn á þingi og fögnuðu vinstri flokkarnir sigri.
Viðræður vinstriblokkarinnar um myndun stjórnar hafa þó ekki gengið sem skyldi. Magdalena Andersson, formaður Jafnaðarmanna, reyndi að ná flokkunum fjórum saman en mistókst og var hún felld í atkvæðagreiðslu í þinginu þegar kosið var um hana sem forsætisráðherra.
Svipaða sögu má segja af Elisabeth Thand Ringqvist, formanni Miðflokksins, sem fékk stjórnarmyndunarumboðið í hendurnar og freistaði þess að mynda miðjustjórn. Það gekk ekki og nú er boltinn kominn í hendur Ulf Kristersson, starfandi forsætisráðherra og formanns Moderaterna.
Vandamál vinstri flokkanna snúa að því að Miðflokkurinn vill ekki sitja í stjórn með Vinstriflokknum sem að sama skapi ætlar ekki að styðja stjórn nema eiga sjálfur sæti við ríkisstjórnarborðið. Miðflokkurinn er líka harður á að starfa ekki með fjarhægriflokki Svíþjóðardemókrata og hefur stjórnarmyndun til hægri því líka verið talin nánast ómöguleg.
Krefst ekki lengur ráðherrastóla
Það gæti hins vegar verið á leiðinni að breytast. Í gær hélt Jimmie Åkesson, formaður Svíþjóðardemókrata, blaðamannafund og tilkynnti að flokkurinn myndi ekki gera kröfu um ráðherrastóla líkt. Í kosningabaráttunni hafði Åkesson verið harður á því að flokkurinn myndi ekki vera stuðningsflokkur ríkisstjórnarinnar áfram nema fá ráðherrastóla en nú virðist vera komið annað hljóð í strokkinn.
Þetta opnar á að Miðflokkurinn snúi sér frá vinstriblokkinni og yfir til hægri, til samstarfs með Moderaterna, Frjálslyndum og Kristilegum demókrötum. Sú stjórn myndi þó aldrei ná brautargengi án stuðnings Svíþjóðardemókrata og yrði að semja við forystumenn þeirra um ákveðin málefni. Að Svíþjóðardemókratar fái ekki ráðherrastóla gæti þó verið nóg til að sannfæra Elisabeth Thand Ringqvist um samstarf til hægri.
Talsmaður Græningja.
Talsmaður Græningja.
Formaður Kristilegra demókrata og orku- og iðnaðarráðherra.
Formaður Miðflokksins.
Formaður Svíþjóðardemókrata.
Formaður Sósíaldemókrata.
Formaður Vinstriflokksins.
Formaður Frjálslynda flokksins og menntamálaráðherra.
Formaður Moderaterna og forsætisráðherra.
Í kjölfar yfirlýsingar Jimmie Åkesson í gær hélt Ringqvist sjálf blaðamannafund þar sem hún kallaði eftir skýrri stefnu frá stóru flokkunum, Jafnaðarmönnum til vinstri og Moderaterna til hægri.
Gaf Ringqvist þeim Andersson og Kristersson fram til föstudags að leggja fram sín helstu stefnumál og í kjölfarið ákvað þingforsetinn Andreas Norlén að Kristersson fengi lengri tíma í stjórnarmyndunarviðræður en hann átti upphaflega að skila skýrslu sinni til Norlén á þriðjudag.
Í kjölfar frétta gærdagsins hafa líkurnar því aukist verulega á að hægristjórn Kristersson haldi velli. Veðbankar hafa sömuleiðis brugðist við og meta nú jafn líklegt að stjórn verði mynduð til hægri og til vinstri, eftir að vinstristjórn hafi verið talin mun líklegri allt frá kosningum.