Kemur þetta fram í skriflegri fyrirspurn fréttastofu til ráðuneytisins. Þrjú stöðugildi hafi verið lögð niður, ekki verði ráðið í tvenn önnur störf sem losnuðu á árinu og verði þrír tímabundnir ráðningarsamningar ekki framlengdir.
„Heildarniðurstaðan er sú að í ráðuneytinu fækkar um átta stöðugildi, fimm fastráðin og þrjú tímabundin,“ segir í svarinu.
Uppsagnirnar miði að því að aðlaga rekstur ráðuneytisins að rekstrarframlögum fjárlaga og mæta hagræðingarkröfum stjórnvalda.