Í hugleiðingum veðurfræðings segir að lægðardrag liggi yfir landinu sem valdi strekkingi og úrkomu víða. Búist er við suðvestanátt á bilinu 10 til 18 m/s í kvöld og hvassast verður norðvestanlands.
Á morgun lægi smám saman og dragi úr vætu. Þurrt verði að mestu annað kvöld norðan heiða og hiti nærri frostmarki. Búist er við lítilsháttar rigningu sunnantil annað kvöld en heldur kólnar. Á mánudag er útlit fyrir hæglyndis veður og hita á bilinu 0 til 5 stig og kólnar enn frekar um kvöldið.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á morgun:
Suðvestan 8-15 m/s og rigning, en þurrt að mestu á Vestfjörðum og Austurlandi. Hiti 3 til 10 stig. Lægir, dregur úr vætu og kólnar síðdegis.
Á mánudag:
Breytileg átt 3-8 og skýjað með köflum, en rigning við suðurströndina. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst.
Á þriðjudag:
Vestlæg átt 8-13 og þurrt að mestu, en gengur í norðan átt norðantil síðdegis og byrjar að snjóa. Kólnandi veður.
Á miðvikudag:
Ákveðin norðanátt með snjókomu, en þurrt sunnan- og vestanlands. Frost um allt land. Lægir vestantil síðdegis.