Kennararáð Cornell-háskóla í Bandaríkjunum hefur lýst yfir vantrausti á yfirstjórn skólans vegna viðbragða hennar við kynferðisofbeldi innan háskólans.
Tillagan um að lýsa yfir vantrausti á skólastjórnendur var samþykkt í dag með 75 atkvæðum gegn 50. Fimm sátu hjá og fimm voru fjarverandi. Vantrauststillagan er tilkomin vegna hópnauðgunar í skólanum fyrir tveimur árum. Skólayfirvöld hafa verið gagnrýnd fyrir hvernig þau tóku á málinu.
Ung kona segir að sjö karlkyns nemendur, félagar í Chi Phi-bræðralaginu, hafi byrlað sér ketamín og nauðgað sér. Málið hefur vakið mikla athygli undanfarið eftir að konan höfðaði mál vegna þess að gerendurnir voru ekki saksóttir á sínum tíma.
Stjórn Cornell styður forseta og stjórnendur skólans
The New York Times segir að vantrauststillagan sé að miklu leyti táknræn en sé áfellisdómur yfir viðbrögðum stjórnenda háskólans við alvarlegu kynferðisafbrotamáli.
Iris Packmanm, ein kennara við skólann sem kaus með vantrauststillögunni, sagði þetta aðeins upphafið. Hún segir að tillaga um vantraust sendi skýr skilaboð um að kennarar séu ekki sáttir við hvernig núverandi stjórnendur tóku á málinu. Og það sem meira er, sendi vantrauststillagan skýr skilaboð til þolenda um að þau sem kusu með tillögunni standi með þolendum.
Ætla að láta gera óháða úttekt á verklagi háskólans
Stjórn háskólans segir í yfirlýsingu sem birt var á heimasíðu skólans í dag að hún lýsi fullum stuðningi við forseta skólans, Michael Kotlikoff, og stjórnendur skólans.
Þar segir að kynferðisofbeldi eigi hvergi heima í Cornell og að þegar hafi verið gripið til aðgerða til að auka öryggi nemenda og stuðning við þolendur. Meðal annars hafi starfsfólki verið fjölgað og forvarnir efldar.
Þá hefur verið ráðist í óháða úttekt á verklagi háskólans sem verður unnin af fyrrverandi aðstoðarríkissaksóknara, Sally Q. Yates. Stjórnin heitir því að birta niðurstöður og tillögur úttektarinnar og ræða þær innan háskólasamfélagsins og laga það sem betur má fara.