Þetta herma heimildir fréttastofu. Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu leiddi uppgjörið til átaka milli mannanna en sonurinn er grunaður um að hafa stungið einn mann til bana og annan lífshættulega.
Lögregla hafi komið að þeim þar sem þeir lágu í blóði sínu í Breiðholti eftir að tilkynning barst um málið klukkan hálf tvö aðfaranótt sunnudags. Samkvæmt heimildum voru feðgarnir einnig með alvarlega áverka.
Feðgarnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald seint á sunnudaginn til 9. nóvembers. Faðirinn var látinn laus úr haldi í dag. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir það í samtali við fréttastofu.
Ekki var talið að rannsóknarhagsmunum yrði stefnt í hættu með því að láta manninn lausan. Rannsókninni miðar vel og er lögreglan að fá nokkuð skýra mynd af atburðarásinni. Lögreglan er með þó nokkur gögn undir höndum sem er nú verið að kanna.
Samkvæmt heimildum fréttastofu höfðu mennirnir tveir sem urðu fyrir stunguárásinni reynt að kúga fé af árásarmanninum um nokkurt skeið. Þrír menn voru upphaflega handteknir aðfarnótt sunnudags en einn þeirra var látinn laus úr haldi stuttu síðar.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er maðurinn sem var látinn laus ekki talinn eiga aðild að málinu. Svo virðist sem hann hafi verið staddur í heimahúsinu með feðgunum þar sem þeir voru handteknir.