Það er nóg um að vera hjá Siggu Ózk þessa dagana. Í dag gaf hún út aðra plötu sína, Pink Static, sem samanstendur af fimm glænýjum lögum auk hinna áður útgefnu „Man on the Moon“, „It Girl Energy“, „Ciao Ciao Bella“ og „Universe“.
Á morgun heldur hún svo út til Puerto Rico þar sem hún mun keppa fyrir Ísland hönd í Ungfrú alheimi þann 24. nóvember næstkomandi.
Sigga Ózk hefur undanfarna mánuði lagt mikla áherslu á á tónlistarsköpun sína samhliða undirbúningi fyrir keppnina. Með plötunni heldur hún áfram að móta sína eigin listrænu sjálfsmynd og sýnir að það er hægt að elta fleiri en einn draum í einu.
Pink Static kom út að streymisveitur í dag og hefur Sigga jafnframt gefið út tónlistarmyndband við lagið „Universe“ þar sem hún sveiflar sér í rólu og syngur um að dreifa ást um heiminn.
Sigga Ózk heitir réttu nafni Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, er 27 ára söngkona, kennari og leikkona með B.Ed-gráðu í kennslufræðum og diplómugráðu frá tónsmíðaskólanum LIMPI. Hún er dóttir Hrafnkels Pálmarssonar tónlistarmanns og Elínar Maríu Björnsdóttur athafnakonu og hefur í tvígang keppt í Söngvakeppni sjónvarpsins, árin 2023 og 2024.