Opinberum stofnunum, leikskólum og fyrirtækjum hafa borist sprengjuhótanir undanfarna daga. Vísir greindi frá því í gær að Keflavíkurflugvelli hafi borist sprengjuhótun úr kunnuglegu netfangi.
Ómar Mehmet Annisius, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum að hótunin hafi verið metin ótrúverðug af lögreglunni á Suðurnesjum sem og greiningardeild ríkislögreglustjóra. Greint var frá því um miðbik október að Íslandsbanka hefði einnig borist sprengjuhótun.
Þá staðfesti Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, að leikskólum hefðu einnig borist slíkar hótanir. Þær væru til rannsóknar en væru sömuleiðis metnar ótrúverðugar.
Fréttastofa RÚV segir sprengjuhótanirnar berast í tölvupósti og skrifaðar á einfaldri ensku. Ýmist sé því hótað að byggingar verði sprengdar eða að sprengiefni hafi verið komið fyrir. Netfangið hafi áður verið tengt við Kourani.
Vísir greindi frá því í september að Kourani hefði verið veitt reynslulausn eftir að hafa afplánað þriðjung af átta ára fangelsisdómi og um leið flutt úr landi til heimalandsins, Sýrlands.
Kourani var dæmdur í átta ára fangelsi í júlí árið 2024 fyrir tilraun til manndráps í versluninni OK Market í Reykjavík í mars sama ár og fjölmörg önnur brot. Hann hefur nú afplánað einn þriðja refsingar sinnar. Þann 8. september hlaut hann reynslulausn og var í kjölfarið fylgt til heimalands síns Sýrlands. Hann sætir 30 ára endurkomubanni inn á allt Schengen-svæðið.