Sprengjuhótanir sem hafa borist ýmsum ríkisstofnunum og fyrirtækjum hafa verið raktar til Sýrlands. Þær eru allar sendar úr sama netfangi sem Mohamed Thor Jóhannesson, betur þekktur sem Kourani, hefur áður notað. Þetta herma heimildir fréttastofu.
Hótanir í tugatali – meðal annars til leikskóla
Fréttastofa greindi frá því um miðjan október að sprengjusveit sérsveitar ríkislögreglustjóra hefði verið kölluð út vegna sprengjuhótana sem sendar voru forsætis- og dómsmálaráðuneyti. Viðlíka hótanir höfðu þá verið sendar á fleiri stofnanir og fyrirtæki. Ekkert lát hefur verið á hótunum síðan og þær skipta nú tugum. Þær hafa meðal annars verið sendar á Hörpu, Reykjavíkurborg og Advania og nú síðast Keflavíkurflugvöll og leikskóla Reykjavíkurborgar í gær.
Sendar úr gmail-netfangi
Sprengjuhótanirnar berast í tölvupósti og eru skrifaðar á einfaldri ensku. Þar er því ýmist hótað að viðkomandi fyrirtæki eða stofnun verði sprengd eða sagt að sprengiefni hafi þegar verið komið fyrir. Hótanirnar hafa allar verið sendar úr sama gmail-netfangi.
Tölvupóstarnir hafa samkvæmt heimildum fréttastofu verið raktir til Sýrlands og eru sendir úr netfangi sem áður hefur verið tengt við Kourani.
Áður sent hótanir með tölvupósti
Kourani er vel þekktur síbrotamaður hér á landi. Hann fékk átta ára dóm fyrir tilraun til manndráps og fleiri brot og var fluttur til heimalands síns Sýrlands í september, á grundvelli nýrra laga. Hann hafði þá afplánað þriðjung refsingar sinnar. Kourani sætir endurkomubanni á Schengen-svæðið næstu 30 árin.
Afbrot hans hafa vakið mikla athygli. Hann kom til Íslands 2017 og braut ítrekað af sér. Hann hafði í hótunum við lögreglumenn og aðra og hótaði meðal annars Helga Magnúsi Gunnarssyni, þáverandi vararíkissaksóknara, og fjölskyldu hans lífláti. Þær hótanir bárust aðallega í tölvupósti.
Sprengjusérfræðingur sendi Reykjavíkurborg leiðbeiningar
Öryggisdeild ríkislögreglustjóra sendi póst til skólastjórnenda hjá Reykjavíkurborg með leiðbeiningum um hvernig ætti að bregðast við sprengjuhótun eftir að nokkrir leikskólar fengu hótun í gær. Í póstinum segir að taka eigi sprengjuhótun alvarlega, fylgja viðeigandi verklagi og tilkynna hana til lögreglu.
Í leiðbeiningunum kemur fram að tilgangur sprengjuhótana sé oftast að valda ótta eða trufla starfsemi. Þá skuli forðast fréttaflutning af hótunum þar sem það þjóni oft aðeins tilgangi þess sem hótunina ber upp og gæti kallað fram eftirhermur.
Berist hótun í tölvupósti, eins og þær sem borist hafa upp á síðkastið, segir í leiðbeiningum að mikilvægt sé að varðveita póstinn sjálfan svo lögregla geti nálgast tölvupóstfang, tímasetningu og aðrar mikilvægar upplýsingar.
Hótanirnar metnar ótrúverðugar
Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn segir málið enn til rannsóknar hjá lögreglu. Hótanirnar séu allar keimlíkar og hann ítrekar að þær hafi hingað til verið metnar ótrúverðugar.
Hann vill ekki staðfesta hvaðan þær koma eða hvort einhver liggur undir grun og á þessari stundu geti lögregla ekki tjáð sig frekar um rannsókn málsins.