Faðirinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald seint á sunnudaginn til 9. nóvember en hefur nú verið látinn laus úr haldi þar sem rannsóknarhagsmunir hafa verið tryggðir.
Þetta staðfestir Guðmundur St. Ragnarsson, verjandi mannsins sem er á sextugsaldri, í samtali við fréttastofu. Að hans mati hafi verið rökrétt að manninum yrði sleppt úr haldi þar sem að háttsemi föðurins á vettvangi hafi ekki verið með þeim hætti að ætla mætti að hann ætti aðild að málinu.
Hann gat ekki staðfest hvort faðirinn væri grunaður um eitthvað brot að svo stöddu. Það væri saksóknara og lögreglu að ákveða það. Maðurinn hafi hlotið alvarlega áverka við áflogin og gæti hann verið metinn sem brotaþoli þegar fram líða stundir.
Eins og greint hefur verið frá voru feðgar handteknir í heimahúsi aðfaranótt sunnudags og í kjölfarið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Sonurinn, sem er á fertugsaldri, er grunaður um að hafa orðið manni að bana og um alvarlega líkamsárás gegn öðrum manni.
Atvikið átti sér stað á horni Hraunbergs og Austurbergs í Breiðholti í Reykjavík. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru feðgarnir saman á vettvangi þegar atburðarásin fór af stað. Þeir voru handteknir í heimahúsi í Breiðholti.
Brotaþolar og sakborningar eru allir Íslendingar. Samkvæmt heimildum fréttastofu höfðu mennirnir tveir sem urðu fyrir stunguárásinni reynt að kúga fé af árásarmanninum um nokkurt skeið.
Hinn látni var 34 ára og var með fjölda dóma á bakinu, meðal annars fyrir fíkniefnalagabrot, innbrot og þjófnað. Hann hafði um árabil búið á Spáni en hafði nýlega snúið heim til Íslands.
Fréttin verður uppfærð.