Greint var frá því í gær að Jen Affleck, ein stjarnan úr raunveruleikaþáttunum The Secret Lives of Mormon Wives, SLOMW, hefði sótt um skilnað við eiginmann sinn Zac Affleck. Þau hafa verið gift í sjö ár og eiga þrjú börn. Jen er ólétt að því fjórða.
Í myndbandinu á Tiktok viðurkennir Zac að Jen hafi fyrst rætt við hann um skilnað eftir að hún tók þátt í Dancing with the Start fyrir um ári. Hann hafi þá grátbeðið hana um að vera áfram og það komi honum því ekki á óvart að hún sé komin á þann stað þó að það hafi verið óvænt að lesa um það á vef TMZ. Fjallað er um málið á vef E.
„Ég frétti af skilnaðarbeiðninni frá blaðamanni TMZ,“ sagði Zac í TikTok-myndbandinu og að hann hafi lofað henni að vinna í þeirra málum og laga sambandið fyrir um ári síðan. Stuttu síðar hafi hún svo orðið ófrísk að þeirra fjórða barni.
Hann segir í myndbandinu að hann vilji alls ekki að fólk tali illa um hana og að þau ætli að einbeita sér að því að vera góðir foreldrar.
„Ég vil ekki að neinn tali illa um Jen,“ sagði hann og hélt svo áfram:. „Ég skal vera fyrstur til að viðurkenna að ég hef gert fjölmörg mistök í hjónabandi okkar, og það var einfaldlega kominn tími til að við færum hvort í sína áttina. Við giftum okkur svo ung, en þetta er ömurlegt því mér fannst í alvöru eins og við hefðum átt eitthvað mjög sérstakt þegar við giftum okkur.“
@zacaffleckk ♥️♥️
♬ original sound - Zac Affleck
Hann segir að frá því að þau gengu í hjónaband í Newport Beach í Kaliforníu árið 2019 hafi lífið einfaldlega tekið við og þau hafi fjarlægst hvort annað.
„Við eignuðumst fjögur börn. Við skráðum okkur í raunveruleikaþátt sem hefur virkilega skaðað líf margra,“ benti Zac á. „Hjónaband er erfitt. Að vera í hjónabandi fyrir allra augum er erfitt. Að ala upp börn er erfitt. Og ég held að hægt og rólega með tímanum höfum við misst neistann.“
Þótt hann segði að „síðustu tvö ár hefðu tekið gríðarlegan toll“ segir Zac að hann vonist til að geta nú beint sjónum sínum að nýjum markmiðum eins og að fara aftur í læknanám en hann hætti í því til að sinna börnunum á meðan Jen var í tökum á raunveruleikaþáttunum.
Börnin í forgangi
Umfram allt sagðist Zac staðráðinn í að eiga „heilbrigt“ samstarf við Jen um uppeldi barnanna á meðan hún býr sig undir fæðingu þess fjórða.
„Það er í raun það sem ég set í forgang,“ sagði hann. „Mér finnst líklega það sem nagar mig mest vera að mér finnst ég hafa brugðist börnunum mínum og ég hef áhyggjur af því að ég eigi eftir að valda þeim skaða. Og ég vona bara að við getum samt gefið þeim eðlilega æsku, en hvað það varðar erum við Jen svo sannarlega sammála um að vilja gefa þeim besta líf sem við getum.“