Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.
Sonur brotaþola í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur, sem sökuð er um umfangsmikið umsáturseinelti, sagði hana hafa gert allt sem í hennar valdi stóð til þess að gera líf hans og fjölskyldu hans sem erfiðast. Hún hafi sent honum skilaboð úr nokkrum mismunandi aðgöngum, þar af einum sem var nefndur eftir ömmu hans.
Mikið tjón varð þegar eldur kom upp í nytjamarkaði ABC barnahjálpar á Smiðjuvegi í Kópavogi í nótt. Framkvæmdastjóri samtakanna segir starfsfólk miður sín enda hafi mikil vinna verið lögð í markaðinn sem er ein helsta fjáröflunarleið samtakanna.
Forsvarsmenn Rauðu regnhlífarinnar segja að sér hugnist ekki nýtt frumvarp dómsmálaráðherra um vændi. Afglæpavæða þurfi kaup og sölu vændis og koma fórnarlömbum mansals til aðstoðar í stað þess að vísa þeim úr landi.
Formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna segir að það felist ákveðin viðurkenning í því að Samkeppniseftirlitið hafi beint tilmælum til Tix vegna stöðu þeirra á markaði. Framkvæmdastjóri Tix segist taka ábendingunum alvarlega en bendir á að ekkert í samningum þeirra við stór tónleikahús útiloki aðra frá samkeppninni.
Í sportinu fjöllum við um nýjan þjálfara Breiðabliks í Bestu deild karla og ræðum um Icebox sem fer fram í kvöld.