Eftir að hafa þurft að aflýsa og fresta fjölda tónleika í síðasta mánuði vegna veikinda sinna sneri hinn 86 ára Sir Tom Jones aftur á sviðið í The Greek Theatre í Los Angeles á miðvikudagskvöld.
Jones var inniliggjandi í viku á the Ronald Regan UCLA Medical Center í Los Angeles og sagði tónleikagestum á miðvikudagskvöldið frá veikindum sínum sem hann hélt að myndu draga sig til dauða.
„Nú jæja, það er komið að þessu. Þú hefur átt frábært líf, Tommy, en því er nú lokið,“ sagðist hann hafa hugsað með sér á spítalanum. Starfsfólkinu hafi hins vegar tekist vel til við að lækna hann og koma honum aftur á fætur.
„Ég var inniliggjandi í viku og ég sagði: „Ég þarf að koma mér aftur á sviðið“. Hér á ég heima. Ég get ekki lifað án þess, trúið mér,“ sagði hann.
Tom Jones er einn vinsælasti velski tónlistarmaður sögunnar og hefur sent frá sér fjölmarga slagara í gegnum tíðina á borð við „It's Not Unusual“, „Sexbomb“, „She's a Lady“ og „What's New Pussycat“.
Síðustu fjórtán ár hefur Jones verið í dómarapanel raunveruleikaþáttarins The Voice UK en var rekinn úr starfinu eftir síðustu þáttaröð. Samhliða því hefur Jones verið duglegur að gigga og kemur fram í Yaamava-leikhúsinu í San Bernadino í Kaliforníu í kvöld.