Þriggja bíla árekstur varð á Hlíðarbraut við Teigarsíðu á Akureyri um klukkan 12:30 í dag. Þetta staðfestir Jóhann Olsen varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Hann segir að einhver meiðsli hafi orðið á fólki. Að minnsta kosti einn var fluttur á sjúkrahús. Það sér talsvert á bílunum. Rannsóknarlögregla er við störf á vettvangi.
Hlíðarbraut er lokuð á meðan lögregla er við störf.
Fréttin hefur verið uppfærð.