Almenningur, sérstaklega eldra fólk, hefur undanfarið verið að taka út reiðufé í stórum stíl og sumir háar upphæðir vegna upplýsinga í bæklingi almannavarna „Verum viðbúin“.
Þetta kemur fram í tilkynningu Félags eldri borgara sem send var á félagsmenn eftir að Almannavarnir höfðu samband við félagið. Einn af stóru bönkunum vakti athygli Almannavarna á málinu eftir að bæklingurinn var gefinn út.
Í bæklingi Almannavarna eru ábendingar sem undirbúa eiga almenning fyrir aðstæður sem raskað gætu daglegu lífi, til dæmis ef náttúruhamfarir eiga sér stað, rafmagnsleysi, fjarskiptatruflanir eða aðrar áskoranir.
Til að bregðast við slíkum aðstæðum er meðal annars bent á að gott sé að eiga tiltækt reiðufé. Sú upphæð ráðist af fjölda þeirra sem eru á heimilinu og hvaða vörur þarf að vera hægt að kaupa.
Samkvæmt ábendingum Almannavarna til Félags eldri borgara er ekki talin ástæða til að eiga reiðufé til langs tíma og að óþarfa áhætta fylgi því að vera með slíkar upphæðir heima hjá sér, sérstaklega ef þær eru ekki læstar í öryggisskáp.