Í ár fær sýningin diskóblæ og á sviðið stígur hópur söngvara og hljóðfæraleikara sem hefur komið víða við í tónlistarheiminum. Í boði er pakki með fordrykk, þriggja rétta kvöldverði og miða á sýninguna. Einnig er hægt að kaupa stakan miða á sýninguna.
Ásamt Geir koma fram Pálmi Gunnarsson, Eiríkur Hauksson, Rúnar Þór, Helga Möller, Richard Scobie og Arney Ingibjörg auk heimsþekktra hljóðfæraleikara. Geir verður því í góðum hópi þegar hann slær tóninn fyrir jólin í Gamla bíói.
„Ég hef sagt það í gríni að ég sé búinn að vera í jólaskapi síðan í byrjun árs 2016,“ segir Geir, sem segist alltaf jafn spenntur fyrir tónleikunum þótt hann haldi þá nú tíunda árið í röð.
Það var þó ekkert tíu ára plan á teikniborðinu þegar Geir og bandaríski tónlistarmaðurinn Don Randi ákváðu að setja upp fyrstu sýninguna. Hugmyndin kviknaði eftir að þeir höfðu sjálfir farið á jólatónleika hér heima. Þeim fannst freistandi að fara aðra leið og færa svolítinn Vegas-glæsileika til Íslands.
„Þar sem Don er svo vel tengdur þarna úti datt okkur í hug að fá flotta bandaríska hljóðfæraleikara og gera alvöru Vegas-sýningu á Íslandi, með mat, fordrykk og sýningu á eftir.“
Frá Elvis og Beach Boys í Gamla bíó
Samstarf þeirra Geirs og Dons nær aftur til ársins 2003 og hófst fyrir tilstilli Ólafs Gauks og Önnu Mjallar. Síðan hafa verkefnin orðið mörg og jólasýningin orðið að árlegri hefð.
Don stjórnar stórhljómsveit sýningarinnar en hann á að baki glæsilegan feril. Hann er þekktur úr hópi hljóðversleikaranna The Wrecking Crew og hefur meðal annars unnið með The Beach Boys, Nancy Sinatra, Elvis Presley, Neil Diamond og The Jackson 5.
Við trommurnar situr Tom Brechtlein, sem hefur meðal annars unnið með Christopher Cross og Kenny Loggins. Saxófónleikarinn Brandon Fields hefur sömuleiðis komið víða við og m.a. unnið með George Benson og Earth, Wind & Fire. Það er því óhætt að segja að mikil reynsla fylgi tónlistarfólkinu inn á sviðið í Gamla bíói.
Hver einasti hljóðfæraleikari sem kemur fram á stórfenglegan feril. Þegar ég tala um heimsklassatónleika meina ég það.
Íslensku hljóðfæraleikararnir gefa heldur ekkert eftir, en í hópnum eru meðal annarra Þórir Baldursson hljómborðsleikari og Birgir Nielsen trommuleikari.
Geir segir metnaðinn frá upphafi hafa snúist um að vanda til verka og leyfa gestum að njóta þess sem hljóðfæraleikararnir hafa fram að færa.
Jólin fá diskóbúning
Diskóstíllinn setur svip á sýninguna í ár, en jólalögin eru aðeins hluti af stærri tónlistarveislu. Geir áætlar að þau séu um fjórðungur dagskrárinnar. Inn á milli leynast síðan þekkt lög úr öðrum áttum.
Lögin fá nýjar útsetningar og dagskráin breytist milli ára. Gestir sem hafa komið áður geta því átt von á nýju efni þegar þeir setjast aftur í salinn. „Það er það sem er svo frábært við sýninguna og þess vegna kemur fólk aftur og aftur. Ég er aldrei með sömu lögin. Í dag á ég hátt í 200 útsett lög fyrir þessa sýningu.“
Um 25 lög eru að jafnaði á dagskránni og söngvarahópurinn gefur góð fyrirheit um fjölbreytnina. Með þátttöku Arneyjar Ingibjargar fá reynsluboltarnir félagsskap ungrar söngkonu, í samræmi við eitt af upphaflegum markmiðum sýningarinnar. „Það var einmitt það sem við lögðum upp með í upphafi: að gefa ungu og efnilegu fólki tækifæri til að koma og syngja með okkur.“
Heilt kvöld við skreytt borð
Í salnum verða skreytt hringborð og umgjörðin er í höndum Evu Þórisdóttur, sem hefur séð um skreytingarnar frá upphafi. Þeir sem velja matarpakkann hefja kvöldið á fordrykk og borðhaldi klukkan 18.30 og sitja síðan áfram við borðin þegar sýningin hefst klukkan 20. Einnig er hægt að kaupa miða eingöngu á tónleikana og sitja þeir gestir á efri hæð Gamla bíós.
Það er það sem er svo frábært við sýninguna og þess vegna kemur fólk aftur og aftur. Ég er aldrei með sömu lögin.
Pakki með fordrykk, þriggja rétta kvöldverði og miða á sýningu kostar 19.500 krónur en tónleikamiðinn einn 6.900 krónur. Miðasala fer fram á MiðiX.
Tónleikarnir verða jafnframt teknir upp og sýndir síðar á SÝN.
Kærleikurinn með heim
Eftir áratug er verkefnið orðið Geir afar kært. Hann segir ástríðuna fyrir því að gleðja fólk og bjóða upp á öðruvísi upplifun halda sér gangandi. „Þessir tónleikar eru eins og barnið mitt.“
Jólin sjálf snúast svo fyrst og fremst um samverustundir með eiginkonunni og dótturinni. Þar er kjarninn í jólaskapi mannsins sem hefur, samkvæmt eigin frásögn, varla farið úr því síðan 2016. „Mér finnst yndislegt að vera með konunni minni og dóttur um jólin. Það besta sem ég hef gert er að kynnast henni og eignast barnið okkar. Það gaf lífi mínu fyllingu.“
Geir vonast til að gleðin fylgi gestum heim að tónleikum loknum. Spurður hvað hann vilji helst að sitji eftir hjá þeim stendur ekki á svarinu: „Kærleika og að þeim líði vel. Ég held að það sé aðalatriðið.“