Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður, sem braust inn í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi, hefur birt myndband af innbrotinu á Instagram. Einar Logi lýsir í myndbandinu því sem hann telur slæman aðbúnað svína í búinu og bendir meðal annars á að nýbornir grísir liggi víða dauðir og að mörg svínin séu með legusár.
„Ég er staddur hérna á svínabúi á Kjalarnesi þar sem í kringum mig eru hundruð svína sem eru að þjást, allt lífið sitt, inni í þröngum búrum. Þau fá aldrei að fara út, þau fá aldrei að sjá sólina, þau fá aldrei að finna fyrir grasi, það eina sem þau þekkja er bara þjáning,“ segir Einar Logi í myndbandinu sem sjá má hér fyrir neðan.
Við vörum við innihaldi myndbandsins.
Segir Einar Logi í myndbandinu þar sem hann hvetur fólk til að hætta að borða svínakjöt. Brotist var inn á svínabúið í maí. Dýrum var hleypt út, skemmdarverk unnin og þurfti að aflífa mörg svín eftir að þau slösuðust.
Lögreglan segir að karlmaður á þrítugsaldri hafi verið handtekinn vegna innbrotanna. Hann hefur játað sök. Innbrotin og eignaspjöllin sem maðurinn játar á sig voru í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi og í alifuglabú Reykjabúsins í Mosfellsbæ. Hann játaði einnig á sig innbrot í alifuglabú og svínabú á Suðurlandi og Kjalarnesi.
Innbrotið hafi ollið því að fjöldi dýra bæði slösuðust og drápust sem sé aldrei réttlætanlegt.
Ekki hefur náðst í Geir Gunnar Geirsson, forstjóra Stjörnugríss, vegna málsins. Haft er eftir honum í viðtali á Vísi að Einar Logi stilli sjálfum sér upp sem dýrlingi í myndbandinu en hafi svo framið hryðjuverk á dýrunum. Mála megi allt upp í slæmu ljósi hvort sem um sé að ræða skóla, elliheimili, leikskóla eða landbúnað.