Fyrsti rafmagnsbíll ítalska lúxusbílaframleiðandans Ferrari, sem ber heitið Luce, vakti mikla athygli þegar hann var kynntur í maí síðastliðnum.Viðbrögðin voru þó langt frá því að vera öll jákvæð og sætti Ferrari harðri gagnrýni fyrir að hverfa frá þeirri hefð að framleiða kraftmikla sportbíla með bensínvélum.Nú virðist hins vegar sem gagnrýnendur hafi vanmetið áhugann á bílnum. Samkvæmt ástralska fréttamiðlinum News.com.au er öll fyrirhuguð framleiðsla Luce fyrir næsta ár þegar frátekin og eftirspurnin slík að nýir kaupendur þurfa að bíða til ársins 2028.
Fólk hló að nýja Ferrari-bílnum – Nú komast færri að en vilja