Eva Geller var ein þeirra sem særðust í hryðjuverkaárásinni sem var framin á Bondi-strönd í Sydney þann 14. desember í fyrra, er fram kemur í umfjöllun breska ríkisútvarpsins um málið. Árásin beindist að hátíð gyðinga en Sajid var skotinn til bana af lögreglu en Naveed var handtekinn og fluttur á sjúkrahús, alvarlega særður.
Minningunni haldið á lofti
Að minnsta kosti sextán létust í árásinni og 42 voru fluttir á sjúkrahús. Hinir látnu voru á aldrinum tíu til 87 ára, þar á meðal rabbíinn Elí Schlanger en hann var á meðal þeirra sem höfðu skipulagt hátíðina á Bondi-strönd. Schlanger var liðlega fertugur og lét eftir sig fimm börn.
Haft er eftir rabbínanum Aron Moss að Geller, sem hafi sloppið undan helförinni sem barn, hefði verið „jákvæð, kærleiksrík og sterk alla ævi, allt til hinstu stundar“. Þá hefur Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, tjáð sig um andlátið en hann ítrekaði að þjóðin myndi aldrei gleyma þeim þjást ennþá.
Hertu reglur
Árásin í desember var mannskæðasta skotárás í Ástralíu í tæpa þrjá áratugi og leiddi til víðtækra umbóta á skotvopnalöggjöf og hertra aðgerða gegn hatursorðræðu. Annar byssumannanna, Sajid Akram, 50 ára, var felldur af lögreglu á vettvangi. Sonur hans, Naveed Akram, var handtekinn og ákærður fyrir 15 morð, 40 morðtilraunir og eitt hryðjuverk.
Sjá einnig: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni
„Allt frá því að hún var skotin í árásinni á Bondi hafði hún verið inn og út af sjúkrahúsi og vildi alltaf komast heim. Henni var sagt að hún myndi aldrei ganga aftur, en á undraverðan hátt og með ótrúlegri þrautseigju gekk hún aftur,“ er haft eftir rabbínanum Moss.