Trump kynnir nýja derhúfu
Eftir afhroð í þingkosningum lýsti Donald Trump forsetaskrifstofuna þjóðarminnisvarða og sýndi derhúfu með nýrri stefnu hans.
Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði í dag tilskipun um að sporöskjforsetaskrifstofan í Hvíta húsinu skyldi verða þjóðarminnisvarði. Hann leggur þannig enn meiri áherslu á að fegra Hvíta húsið þrátt fyrir stóran ósigur Repúblikanaflokks hans í þingkosningunum.
Gagnrýnendur sökuðu Trump um að hafa fyrir þingkosningarnar á þriðjudag hunsað áhyggjur kjósenda af stríðinu í Íran og framfærslukostnaði, en einblínt þess í stað á fjölmargar framkvæmdir og endurbætur í höfuðborginni.
Í gær, daginn eftir að Demókratar náðu meirihluta í fulltrúadeildinni og öldungadeildinni, lét Trump kosningaúrslitin nær alveg liggja milli hluta. Þess í stað sýndi hann framkvæmdir við nýjan danssal sinn í Hvíta húsinu.
Að þessu sinni beindist athygli Trump að forsetaskrifstofunni, sem hann hefur skreytt með gyllingu frá því að hann tók aftur við völdum í fyrra, og fundarsal ríkisstjórnarinnar við hlið hennar.
Hann sagði að yfirlýsingin myndi „gera öllum ómögulegt að eyðileggja þennan ótrúlega stað nokkurn tíma“ og koma …