Sækist eftir stjórasæti SÞ í skugga á­sakana vegna ó­dæða í Súdan - Vísir

Sækist eftir stjórasæti SÞ í skugga á­sakana vegna ó­dæða í Súdan - Vísir

Sækist eftir stjórasæti SÞ í skugga á­sakana vegna ó­dæða í Súdan - Vísir

Blaðamaður New York Times hefur komið höndum yfir skýrsluna sem lögð var fyrir öryggisráðið í síðustu viku. Þar kemur fram hvernig öryggisfyrirtæki frá Furstadæmunum með náin tengsl við yfirvöld þar hafi flutt kólumbíska málaliða til landsins gegnum leppsveitir í Líbíu og Sómalíu.

Furstadæmin hafa lengi verið sökuð um að styðja uppreisnarhópinn Rapid Support Forces í baráttu hans gegn stjórnarher landsins, með því að þjálfa uppreisnarmenn, ráða málaliða og senda ýmis hergögn og dróna til RSF.

Hergagnaflutningar til Súdan eru bannaðir samkvæmt samþykktum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Yfirvöld í Furstadæmunum hafa alltaf þrætt fyrir þessar ásakanir en fyrir þeim eru talsverðar sannanir sem hafa litið dagsins ljós á undanförnum árum.

Vill verða framkvæmdastjóri

Þessi nýjasta skýrsla var lögð fyrir öryggisráðið á viðkvæmum tíma fyrir Furstadæmin þar sem Lana Zaki Nusseibeh, fyrrverandi utanríkisráðherra Furstadæmanna og háttsettur erindreki landsins, er ein af þeim sem vilja taka við embætti framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna af Antonio Guterres.

Reuters sagði frá því í síðasta mánuði að Nusseibeh stæði frammi fyrir mikilli gagnrýni frá mannréttindasamtökum og fleirum, sem mótmæltu því að hún yrði framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Það er meðal annars á þeim grunni að hún hafi alfarið hafnað ásökunum gegn Furstadæmunum um Súdan án þess að kynna sér þær og reynt að hvítþvo aðkomu ríkisins að átökunum í Súdan og í Jemen.

Þar að auki hefur Nusseibeh verið sökuð um að reyna að standa í vegi rannsakenda Sameinuðu þjóðanna og það stundum með góðum árangri, þegar þeir hafa verið að skoða aðkomu furstadæmanna að átökum í öðrum ríkjum. Furstadæmin hafa ítrekað verið sökuð um að styðja stríðsherra og brjóta gegn vopnasölubönnum Sameinuðu þjóðanna.

Í samtali við NYT segja bandarískir embættismenn að á bak við tjöldin hafi Nusseibeh unnið hörðum höndum að því að fá ríkisstjórnir annarra landa til að styðja Furstadæmin í yfirlýstri stöðu þeirra um meint hlutleysi gagnvart átökunum í Súdan.

Í tölvupósti til NYT segir Nusseibeh að átökin í Súdan séu hræðileg og að þau verði í forgangi hjá henni, verði hún framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Þá hét hún því að ef rannsakendur Sameinuðu þjóðanna kæmust á snoðir um að önnur ríki kæmu að átökunum myndi hún bregðast við.

„Súdan mun reynast prófsteinn næsta framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.“

Hún sló á svipaða strengi í viðtali við Financial Times sem birt var í dag. Þá sagði Nusseibeh að sem framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna yrði hún sjálfstæð frá yfirvöldum í Abu Dhabi.

Hún var sérstaklega spurð út í það hvernig hún gæti tekið að sér stöðu helsta verndara alþjóðasamþykkta og mannréttinda í heiminum, eftir að hafa um árabil spilað stóra rullu í ríkisstjórn sem sökuð hefur verið um að brjóta gegn þessum samþykktum og mannréttindum og um að styðja RSF.

„Það er enginn sem kemur ekki einhversstaðar frá,“ sagði hún.

„Við komum öll einhvers staðar frá. Ég hef starfað sem diplómati í meira en áratug. Ég hef séð ríki, stór sem smá og allt þar á milli, sökuð um að brjóta alþjóðleg mannúðarlög í skýrslum Sameinuðu þjóðanna.“

Mannskæð átök

Átökin í Súdan hófust árið 2023. Abdel Fattah Al Burhan, leiðtogi hers Súdan, og Mohamed Hamdan Dagalo, leiðtogi RSF, tóku höndum saman árið 2021 og frömdu valdarán í Súdan. Árið 2023 stóð svo til að innleiða RSF í herinn en Dagalo var mótfallinn því og hófust átök þeirra á milli í kjölfarið.

RSF var lengi með yfirhöndina í átökunum en stjórnarherinn sótti svo verulega á 2024 og í upphafi 2025. Herinn rak vígamenn RSF frá Khartoum, höfuðborg Súdan, í mars það ár.

Síðan þá hefur RSF aftur vaxið ásmegin og hefur það að miklu leyti verið rakið til stuðnings Furstadæmanna.

Átökin hafa komið verulega niður á almenningi í Súdan og hafa þau verið mjög grimmileg. Milljónir hafa lengi staðið frammi fyrir hungursneyð vegna átakanna. Báðar fylkingar hafa verið sakaðar um stríðsglæpi og kynferðisofbeldi er mjög umfangsmikið.

Önnur ríki hafa einnig komið að átökunum. Þar á meðal eru Rússland, sem studdi fyrst RSF og síðan stjórnarherinn, Úkraína, sem sendi meðal annars sérsveitarmenn til Súdan þegar Rússar studdu RSF, Tyrkland og Íran.

Flest ríkjanna hafa stutt stjórnarherinn með hergögnum. Stuðningur þessara ríkja er þó ekki talinn jafn umfangsmikill og áhrifamikill og stuðningur Furstadæmanna við RSF.

Komu í veg fyrir birtingu skýrslu um málaliða

Það að málaliðar frá Kólumbíu hafi aðstoðað RSF og að þeir hafi verið ráðnir af yfirvöldum í Furstadæmunum eru ekki nýjar fréttir.

Í fyrra bárust fregnir frá Súdan um að stjórnarherinn þar hefði sprengt upp herflugvél sem talin var í eigu hers Furstadæmanna. Í þeirri árás dóu að minnsta kosti fjörutíu kólumbískir málaliðar.

Þá var sagt frá því í sumar að rannsakendur Sameinuðu þjóðanna hefðu komist á snoðir um það að flugvélar í eigu bandarísks málaliðafyrirtækis hefðu verið notaðar til að flytja málaliða frá Suður-Ameríku, vopn og dróna til Súdan. Þetta hefði verið gert fyrir hönd Furstadæmanna og til stuðnings RSF.

Sjá einnig: Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan

Skýrsla sem rannsakendur SÞ sömdu um þessa flutninga og lögðu fyrir öryggisráðið var aldrei birt. Það voru erindrekar Barein, sem var þá með sæti í ráðinu, sem komu í veg fyrir birtingu skýrslunnar.

Heimildarmenn NYT segja yfirvöld í Furstadæmunum hafa þrýst mjög á Barein um að koma í veg fyrir birtingu skýrslunnar.

Starfa víða sem málaliðar

Uppgjafahermenn frá Kólumbíu hafa lengi starfað sem málaliðar víða um heim. Her Kólumbíu er sá næststærsti í Suður-Ameríku og hefur um árabil barist gegn fíkniefnabarónum og uppreisnarmönnum. Hermennirnir hafa því margir mikla reynslu af átökum.

Um tíu þúsund kólumbískir hermenn hætta hjá hernum á ári hverju og um árabil hafa þeir starfað víða um heim sem málaliðar í nokkuð stórum hópum. Meðal átakasvæða sem málaliðar frá Kólumbíu hafa starfað á á undanförnum árum má nefna Úkraínu, Írak, Jemen og Austur-Kongó.

Einnig má nefna að það voru kólumbískir málaliðar sem tóku þátt í áhlaupi á heimili Jovenel Moise, fyrrverandi forseta Haítí, þegar hann var myrtur árið 2021. Þeir sögðust hafa verið plataðir til að taka þátt í áhlaupinu.

Furstadæmin eru sögð hafa ráðið frá 1.500 til tvö þúsund málaliða frá Kólumbíu til að styðja RSF.

Tóku þátt í blóðbaðinu í El-Fasher

Málaliðarnir í Súdan voru ráðnir af fyrirtæki sem heitir Global Security Services Group (GSSG) og er skráð í furstadæmunum. Þeir tilheyra hópi sem kallast „Eyðimerkurúlfarnir“ og er með bækistöðvar í Nyala, í suðvesturhluta Súdan.

Þessir málaliðar eru sagðir hafa komið að umsátrinu um El-Fasher og ódæðunum sem framin voru þar eftir að borgin féll í hendur meðlima RSF.

Borgin var stærsta byggðin sem stjórnarher Súdan hélt í Darfur-héraði og féll eftir um fimm hundrað daga umsátur RSF. Sameinuðu þjóðirnar hafa sakað RSF-liða um margvíslega glæpi gegn mannkyninu vegna umsátursins.

Politico sagði frá því í fyrra að erindrekar Furstadæmanna hefðu beitt Evrópuþingmenn miklum þrýstingi þegar þeir voru að ræða ályktun um að fordæma ódæðin í El-Fasher. Þá vildu erindrekarnir að Furstadæmin yrðu ekki nefnd í ályktuninni, sem var á endanum ekki gert.

Furstadæmin eru einnig sögð reka þjálfunarbúðir í Eþíópíu, nærri landamærum Súdan, þar sem þúsundir meðlima RSF.

Furstadæmin hafa mikilla hagsmuna að gæta í Súdan. Abdel Fattah Al Burhan og ríkisstjórn hans hafnaði umfangsmiklum samningi við furstadæmin um að byggja höfn við Rauðahafið í framtíðinni. Þá má finna mikið magn af gulli í jörðu í Súdan og það hefur um árabil að miklu leyti verið flutt til Dúbaí.

Furstadæmin hafa átt í mjög umfangsmiklum fjárfestingum í Súdan í gegnum árin.

#eftir #skugga #stjórasæti #sækist #ásakana

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262959065d/saekist-eftir-stjorasaeti-sth-i-skugga-asakana-vegna-odaeda-i-sudan

📰 Aðrar fréttir

Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
📅 06.11.2026 👁️ 1
Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Stephen Miller starfsmannastjóra Hvíta hússins frá og með mánudeginum. Forsetinn tilkynnti um þetta í færs...
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
Bandarískir miðlar greina frá en konan, sem fer undir nafninu Jane Doe í fjölmiðlum, höfðaði einkamál gegn Cornell og bræðrafélaginu Chi Phi. Málið va...
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
📅 06.11.2026 👁️ 1
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
The US president's promotion of Miller, a loyal partisan firebrand to be his new chief of staff sets up likely clashes with Congress.
Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu
📅 06.11.2026 👁️ 2
Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu
Landhelgisgæslan hefur sett upp ratsjárstöðvar á fjórum stöðum sem eiga að efla eftirlit á hafsvæðum nærri landi og fylgjast með skipaumferð sem gefa ...
Kastaði upp þegar hún heyrði dóminn yfir manninum sem stakk hana 22 sinnum
📅 06.11.2026 👁️ 1
Kastaði upp þegar hún heyrði dóminn yfir manninum sem stakk hana 22 sinnum
Ung móðir í New York kastaði upp af geðshræringu þegar hún heyrði hversu vægan fangelsisdóm maðurinn sem stakk hana 22 sinnum með hnífi hafði hlotið. ...
„Svína­bændur eiga að fara að lögum“ - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
„Svína­bændur eiga að fara að lögum“ - Vísir
Einar Logi Pétursson hefur birt umdeild myndskeið úr tveimur svínabúum Stjörnugríss þar sem meðal annars mátti sjá dauð svín og með áverka.  Sjá einni...
Skilnaðardeilur fóru fyrir dóm því maðurinn taldi það bersýnilega ósanngjarnt að skipta eignum til helminga
📅 06.11.2026 👁️ 1
Skilnaðardeilur fóru fyrir dóm því maðurinn taldi það bersýnilega ósanngjarnt að skipta eignum til helminga
Það er aldrei skemmtilegt að skilja, sérstaklega þegar deilt er um skiptingu eigna. Að meginreglu er eignum skipt í helminga eftir svokallaðri helming...
Waterford: Child, 6, dies weeks after arson attack on family home
📅 06.11.2026 👁️ 2
Waterford: Child, 6, dies weeks after arson attack on family home
The attack happened last month at the family home on the outskirts of Waterford in the Republic of Ireland.
Snjórinn féll á Dönsku kránni
📅 06.11.2026 👁️ 2
Snjórinn féll á Dönsku kránni
Sala á jólabjór Tuborg hófst í kvöld, sem er orðinn hluti af jólaundirbúningi margra. J-dagurinn, sem er stytting á julebryg dag, eða „jólabjórsdagur“...
Meghan's father Thomas Markle appears in court over child sex abuse material
📅 06.11.2026 👁️ 2
Meghan's father Thomas Markle appears in court over child sex abuse material
The 82-year-old was arrested in Florida after the FBI searched two Los Angeles-area storage units he rented.
Fölsuð gögn hafi verið lögð fram - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Fölsuð gögn hafi verið lögð fram - Vísir
Garpur Elísabetarson og dóttir hans báru bæði vitni fyrr í vikunni þar sem þau greindu frá meintu umsáturseinelti af hálfu Írisar Helgu. Sögðu þau frá...
Hræðsla valdi lækkun á hlutabréfum
📅 06.11.2026 👁️ 4
Hræðsla valdi lækkun á hlutabréfum
Snorri Jakobsson hagfræðingur segir að hræðsla við hertar reglugerðir gagnvart gagnaverum og gervigreindarfyrirtækjum valdi fallinu sem varð á gengi b...
Björn Leví svarar fyrir sig og hjólar í þingmennina: „Þetta eru gersamlega vanhæfir einstaklingar“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Björn Leví svarar fyrir sig og hjólar í þingmennina: „Þetta eru gersamlega vanhæfir einstaklingar“
Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, tekur upp hanskann fyrir Sjálfstæðismenn vegna þeirra fjölmörgu fyrirspurna sem Guðlaugur Þór Þór...
Óhugnanleg frásögn úr æsku Russell Brand – Faðirinn keypti vændiskonu handa honum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Óhugnanleg frásögn úr æsku Russell Brand – Faðirinn keypti vændiskonu handa honum
Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand, sem hefur verið sakfelldur fyrir alvarleg kynferðisbrot, var aðeins 17 ára þegar faðir hans keypti vændi...
MAST boðar rannsókn og gagnrýnir Einar Loga - „Aldrei réttlætanlegt með neinum hætti“
📅 06.11.2026 👁️ 3
MAST boðar rannsókn og gagnrýnir Einar Loga - „Aldrei réttlætanlegt með neinum hætti“
Einar Logi Pétursson, sem var handtekinn vegna innbrota og sleppinga dýra á nokkrum búum á Kjalarnesi, birti myndband úr innbrotinu í verksmiðju Stjör...
Líti ekki á and­lát dóttur sinnar sem slys - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Líti ekki á and­lát dóttur sinnar sem slys - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram í viðtali Heimildarinnar við foreldra Hönnuh, þau Samönthu og Gregory Lane.  Hannah Jane Large lést ásamt tveimur ö...
Hefja ákæruferli á hendur forseta vegna hruns banka
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hefja ákæruferli á hendur forseta vegna hruns banka
Ólga og mótmæli hafa verið í Paragvæ í vikunni eftir að seðlabankinn tók yfir stærsta banka landsins, Ueno-banka.Nær helmingur Paragvæ-búa var í viðsk...
Formaður Dýraverndarsambandsins segir svínabúum bera að huga frekar að velferð dýra en hámarksframleiðslu
📅 06.11.2026 👁️ 4
Formaður Dýraverndarsambandsins segir svínabúum bera að huga frekar að velferð dýra en hámarksframleiðslu
Linda Karen Gunnarsdóttir formaður Dýraverndarsambands Íslands segir aðbúnað dýra á búi Stjörnugríss ekki standast núgildandi reglugerð um velferð sví...
Covid-19 bólu­efni landsins að fyrnast - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Covid-19 bólu­efni landsins að fyrnast - Vísir
Þetta kemur fram í farsóttarfréttum embættis landlæknis þar sem segir að þátttaka í bólusetningum gegn Covid-19 bólusetningum hafi farið minnkandi og ...
Ferðamenn nefna stærstu mistökin sem þeir gerðu á Íslandi – „Ég fór á hestbak án góðs brjóstahaldara“
📅 06.11.2026 👁️ 4
Ferðamenn nefna stærstu mistökin sem þeir gerðu á Íslandi – „Ég fór á hestbak án góðs brjóstahaldara“
Ferðalög eru ekki alltaf einföld. Sérstaklega ekki til framandi og fjarlægra landa þar sem aðstæður eru ekki eins og fólk er vant. Fyrir marga ferðame...
Vika með fimm tíma svefni lækkaði testósterón ungra karla um 10-15%
📅 06.11.2026 👁️ 5
Vika með fimm tíma svefni lækkaði testósterón ungra karla um 10-15%
Testósteróngildi að degi til lækkuðu um 10-15% hjá tíu ungum, heilbrigðum körlum sem fengu aðeins fimm tíma svigrúm til svefns á nóttu í tilraun við C...
Kourani er enn að hrella Íslendinga
📅 06.11.2026 👁️ 4
Kourani er enn að hrella Íslendinga
Sprengjuhótanir hafa borist opinberum stofnunum, leikskólum og fyrirtækjum undanfarna daga, en málin eru til rannsóknar lögreglu. RÚV greinir frá því ...
Prince Harry and five others seek to challenge Mail publisher privacy ruling
📅 06.11.2026 👁️ 2
Prince Harry and five others seek to challenge Mail publisher privacy ruling
The Duke of Sussex and other public figures lost a High Court case against the publisher of the Daily Mail and Mail on Sunday.
Trump ræður sér nýjan starfs­manna­stjóra - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Trump ræður sér nýjan starfs­manna­stjóra - Vísir
 „Mér er ánægja að tilkynna að Stephen Miller, núverandi aðstoðarstarfsmannastjóri Trump-stjórnarinnar og einn af mínum traustustu ráðgjöfum, verður s...
„Það skiptir engu máli hvort þú sért með fötlun eða ekki“
📅 06.11.2026 👁️ 3
„Það skiptir engu máli hvort þú sért með fötlun eða ekki“
Þær Katrín Lilja, Guðlaug Esther, Bergdís, Klara og Katrín Líf skipa danshópinn Dans án hindrana.Þær eru á aldrinum 11 til 18 ára, æfa hjá Danslistars...
Hélt að svínin myndu hlaupa glöð út - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Hélt að svínin myndu hlaupa glöð út - Vísir
Einar Logi hefur vakið mikla athygli eftir að hann birti tvö myndskeið úr svínabúum Stjörnugríss á Instagram og Facebook þar sem meðal annars má sjá d...
Dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir að svelta 190 börn til dauða - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir að svelta 190 börn til dauða - Vísir
Saksóknarar höfðu farið fram á dauðarefsingu gegn Mackenzie og lífstíðardóm fyrir hina 28. Sum barnanna voru bundin á meðan þau sveltu til dauða. Yfir...
Reykjavíkurborg tók niður síðuna eftir fyrirspurn Nútímans – Efnið þó enn á lista fyrir miðstig
📅 06.11.2026 👁️ 5
Reykjavíkurborg tók niður síðuna eftir fyrirspurn Nútímans – Efnið þó enn á lista fyrir miðstig
Svo virðist sem Reykjavíkurborg hafi tekið niður síðu sem var til umfjöllunar hjá Nútímanum fyrr í dag, 6. nóvember. Síðan var opin snemma dagsins 6. ...
Trump names Stephen Miller as new  chief of staff, replacing Susie Wiles
📅 06.11.2026 👁️ 3
Trump names Stephen Miller as new chief of staff, replacing Susie Wiles
Miller, considered the architect of Trump's hard-line immigration policy, will move into the role on Monday.
Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
📅 06.11.2026 👁️ 2
Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
Þrír dauðadæmdir fangar voru teknir af lífi í Bandaríkjunum í gær, einn í Flórída, annar í Alabama og sá þriðji í Indiana.Slíkt er afar sjaldgæft en þ...
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
📅 06.11.2026 👁️ 3
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
Spanish football always gives us a captivating backdrop for live betting, with matches shifting between slow-built possession and high pressing, amid ...
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
„Við í Hagaskóla ákváðum í sameiningu, það er að segja kennarar, á síðasta skólaári, að endurhugsa svolítið hvernig við notuðum upplýsingatækni eða tæ...
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
📅 06.11.2026 👁️ 4
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
Tenerife is facing an orange rain warning on Sunday as storm Bruna moves across the Canary Islands, with up to 100 millimetres of rain expected in 12 ...
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
Svörin leyndu ekki á sér. Gulur og bleikur eru í uppáhaldi en ekki grár eða steinngrár sem einkennir íslenska byggingarlist og bílaflotan hér á landi....
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem játað hefur innbrotin Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ, birti í dag myndband af innbrot...
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
📅 06.11.2026 👁️ 4
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
Stöðugildum innan Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis fækkar um átta með ráðstöfunum sem gripið var til í vikunni.Í skriflegu svari frá ráðun...
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
📅 06.11.2026 👁️ 4
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sagði í tilkynningu frá skólanum í gær að nauðsynlegt væri að leiðrétta fjármögnun ...
„Við þurfum að laga þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 4
„Við þurfum að laga þetta“
Dagur gegn einelti var haldinn hátíðlegur í Hlíðaskóla. Halla Tómasdóttir forseti Íslands veitti Fjölbrautaskóla Suðurlands hvatningarverðlaun fyrir f...
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
📅 06.11.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
Örvænting stjórnarandstöðunnar og Morgunblaðsins hefur náð nýjum hæðum með þeirri ofuráherslu sem lögð hefur verið á að snúa út úr öllu sem snýr að má...
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
Flugmaður lögregluþyrlu í Bretlandi hefur verið sakaður um að „teikna“ typpamynd á flugkort. Flugmaðurinn segist hafa verið að hringsóla við leit.Bres...
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
Breska sjónvarpsstöðin Sky, búlgarska stöðin Nova TV og RTÉ, írska ríkissjónvarpið, fengu í dag sprengjuhótanir. Rask varð á starfsemi enda þurfti að ...
Spain's rail authorities face European fraud probe after Urda rail disaster
📅 06.11.2026 👁️ 3
Spain's rail authorities face European fraud probe after Urda rail disaster
Prosecutors begin investigating EU funds meant for upgrading the Spanish railway line where a train crash killed 69 people.
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
📅 06.11.2026 👁️ 3
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
Nútíminn hefur fengið afhent gögn frá Akureyrarbæ sem varpa nýju ljósi á ágreining Helgu Daggar Sverrisdóttur, fyrrverandi kennara við Síðuskóla, og s...
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
📅 06.11.2026 👁️ 2
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp Fréttin6. nóvember 2026ErlentLeave a Comment Mikill eldur braust...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Sa...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leiddu til manndráps - Vísir

„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Rottupungurinn reyndist vera æxli - Vísir

Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
Elvar Árni Lund sagði upp starfi sínu sem sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Norðurþings vegna ágreinings um fyrirhugað vindorkuver á Hnotastein...
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
Það er nóg um að vera hjá Siggu Ózk þessa dagana. Í dag gaf hún út aðra plötu sína, Pink Static, sem samanstendur af fimm glænýjum lögum auk hinna áðu...