Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar

Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar

Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar

Nútíminn hefur fengið afhent gögn frá Akureyrarbæ sem varpa nýju ljósi á ágreining Helgu Daggar Sverrisdóttur, fyrrverandi kennara við Síðuskóla, og skólastjórnenda vegna opinberra skrifa hennar um kynvitundarmál. Í skjali frá apríl 2023 kemur fram að stjórnendur töldu skrif hennar hafa neikvæð áhrif á skólastarfið og gáfu henni meðal annars tilmæli sem náðu til skrifa hennar. Lögmaður Helgu mótmælti afskiptunum strax daginn eftir og varaði við einelti.

Ný gögn sem Akureyrarbær hefur afhent Nútímanum sýna að stjórnendur Síðuskóla á Akureyri gerðu formlegar athugasemdir við opinber skrif Helgu Daggar Sverrisdóttur um kynvitundarmál í apríl 2023.

Helga Dögg greindi nýlega frá því í viðtali við Frosta Logason í Spjallinu að hún teldi sig hafa verið hrakta úr kennarastarfinu vegna skoðana sinna. Nútíminn greindi einnig frá starfslokum hennar í Síðuskóla. Hún fór í veikindaleyfi í mars 2024 og ráðningarsambandi hennar við Akureyrarbæ lauk 1. október síðastliðinn.

Í kjölfar viðtalsins óskaði Nútíminn eftir svörum og gögnum frá Síðuskóla og Akureyrarbæ.

„Mér var ýtt út vegna skoðana minna“ – Helga Dögg segir frá erfiðum starfslokum í Síðuskóla

Bærinn synjaði upphaflega um afhendingu upplýsinga með vísan til trúnaðarskyldu og upplýsingalaga en afhenti síðar tvö skjöl: skráningu leiðbeinandi samtals við Helgu Dögg 24. apríl 2023 og bréf Evu Hauksdóttur lögmanns frá deginum eftir.

Töldu skrif hennar hafa neikvæð áhrif á nemendur og starfsfólk

Í skjalinu, sem ber yfirskriftina „Leiðbeinandi samtal“, er fjallað um grein Helgu Daggar sem birtist í Morgunblaðinu 14. apríl 2023.

Þar kemur fram að vinnuveitandi telji skrif hennar ekki aðeins fela í sér gagnrýni á kynvitundarfræðslu, heldur einnig viðhorf sem geti gert lítið úr börnum og unglingum sem upplifa kynáttunarvanda.

Skólastjórnendur töldu jafnframt að skrifin hefðu neikvæð áhrif á upplifun nemenda og umræðu innan skólans.

Undir kaflanum „Neikvæð áhrif greinaskrifanna á starfið innan Síðuskóla“ eru meðal annars tilgreind tvö atriði.

Annars vegar segir að foreldrar séu þegar farnir að óska eftir því að Helga Dögg kenni ekki börnum þeirra vegna afstöðu hennar til kynvitundarmála.

Hins vegar kemur fram að opinber umræða og tenging viðhorfa Helgu Daggar við störf annarra innan skólans hafi orðið til umræðu sem hafi leitt til klofnings.

Tilmæli náðu einnig til skrifa hennar

Á annarri síðu skjalsins eru tilmæli skólastjórnenda sett fram með skýrum hætti.

Þar segir:

„Gæta þarf að því að þau viðhorf sem fram kemur í skrifunum sé ekki tjáð í kennslustund.“

Þá segir einnig:

„Gæta þarf að því að gera ekki lítið úr þeim hópi sem upplifir kynáttunarvanda, bæði í skrifum og tali.“

Síðara ákvæðið er sérstaklega athyglisvert þar sem það vísar ekki eingöngu til framkomu Helgu í kennslustundum heldur einnig til skrifa hennar.

Í skjalinu er jafnframt vísað til ákvæðis kjarasamnings Félags grunnskólakennara um að starfsmenn skuli forðast háttsemi, í starfi eða utan þess, sem geti rýrt álit á starfi þeirra eða starfsgrein.

Stjórnendur töldu að framkomin viðhorf Helgu Daggar vörpuðu rýrð á það starf sem unnið væri innan Síðuskóla.

Lögmaður varaði við einelti daginn eftir

Eva Hauksdóttir lögmaður svaraði skólastjórnendum með bréfi dagsettu 25. apríl 2023.

Í bréfinu eru gerðar alvarlegar athugasemdir við afskipti stjórnenda af opinberri tjáningu Helgu Daggar og því haldið fram að hún njóti stjórnarskrárvarins réttar til að tjá skoðanir sínar.

Eva hafnar því að skrif Helgu feli í sér árásir á transfólk og segir þau vera gagnrýni á hugmyndafræði og stefnumótun í skólastarfi.

Hún bendir jafnframt á að Helga hafi aldrei rætt kynvitundarmál við nemendur sína og að skólastjórnendur hafi ekki sýnt fram á að hún hafi gert lítið úr nemendum.

Samtökin ’78 kærðu ákvörðun lögreglu um að hætta rannsókn á skrifum Helgu Daggar

Þá segir í bréfinu að þetta sé í fjórða sinn sem Helga Dögg sé kölluð á fund skólastjóra vegna skoðana sinna.

Lögmaðurinn varar við því að endurtekin afskipti stjórnenda séu farin að bera keim af einelti á vinnustað og vísar til reglugerðar um aðgerðir gegn einelti.

Í bréfinu er einnig lagt til að skólastjóri sýni Helgu stuðning og geri starfsfólki ljóst að það sé ekki hlutverk skólans að takmarka tjáningarfrelsi starfsmanna sinna.

Helga segir annað skjal hafa verið lagt fyrir hana

Á skráningu leiðbeinandi samtalsins er undirskrift Helgu Daggar, ásamt undirskriftum fulltrúa vinnuveitanda.

Nútíminn bar undirskriftina undir Helgu, enda hafði hún áður lýst því að hafa neitað að undirrita samkomulag á fundinum.

Helga staðfestir að hún hafi undirritað skráningu samtalsins en segir að um annað skjal hafi verið að ræða þegar hún lýsti því að hafa neitað undirritun.

Að hennar sögn fól það skjal í sér að hún samþykkti að mæta í kennsluráðgjöf og skuldbinda sig til að ræða ekki umrædd málefni.

Hún segist hafa neitað að undirrita það skjal.

„Þetta er fundargerðin,“ segir Helga um skjalið sem Akureyrarbær afhenti Nútímanum.

Hún telur jafnframt að fundargerðin gefi ekki hlutlausa mynd af fundinum, þar sem sjónarmið stjórnenda fái mun meira rými en hennar eigin.

Nútíminn hefur ekki fengið hitt skjalið afhent og hefur því ekki getað staðfest nákvæmt efni þess eða hvort það sé enn varðveitt hjá Akureyrarbæ.

Málið vekur spurningar um mörk tjáningarfrelsis kennara

Gögnin staðfesta að opinber skrif Helgu Daggar utan kennslustofunnar urðu tilefni formlegra afskipta skólastjórnenda og að vinnuveitandinn taldi þau hafa neikvæð áhrif á starfsemi skólans.

Þau sýna einnig að stjórnendur settu fram tilmæli um bæði kennslu hennar og skrif, en lögmaður Helgu mótmælti þeim á þeim grundvelli að tjáningarfrelsi hennar væri verndað.

Gögnin ein og sér skera heldur ekki úr um hvort afskipti stjórnenda hafi verið ólögmæt eða hvort þau hafi átt þátt í síðari veikindum og starfslokum Helgu Daggar.

Nútíminn hefur áður fjallað um málið, meðal annars þegar Helga Dögg sagði frá erfiðum starfslokum í Síðuskóla, þegar Samtökin ’78 kærðu ákvörðun lögreglu um að hætta rannsókn á skrifum hennar, og í Spjallinu með Frosta Logasyni.

Nútíminn hefur óskað eftir svörum frá Akureyrarbæ og skólastjóra Síðuskóla um meðferð málsins. Bærinn hefur sent formlegt svar um aðgang að gögnum og afhent framangreind skjöl, en efnisleg svör við öllum spurningum Nútímans liggja ekki fyrir.

Verður greint frá frekari viðbrögðum þegar þau berast.

Hér fyrir neðan má sjá brot úr viðtali Frosta Logasonar við Helgu Dögg af Brotkast.is.

#akureyrarbæ #formlegar #frá #gögn #sýna

Upprunaleg slóð:
https://www.nutiminn.is/forsida/gogn-fra-akureyrarbae-syna-formlegar-athugasemdir-siduskola-vid-opinber-skrif-helgu-daggar/

📰 Aðrar fréttir

Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
📅 06.11.2026 👁️ 0
Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
Þrír dauðadæmdir fangar voru teknir af lífi í Bandaríkjunum í gær, einn í Flórída, annar í Alabama og sá þriðji í Indiana.Slíkt er afar sjaldgæft en þ...
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
📅 06.11.2026 👁️ 0
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
Spanish football always gives us a captivating backdrop for live betting, with matches shifting between slow-built possession and high pressing, amid ...
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
📅 06.11.2026 👁️ 0
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
„Við í Hagaskóla ákváðum í sameiningu, það er að segja kennarar, á síðasta skólaári, að endurhugsa svolítið hvernig við notuðum upplýsingatækni eða tæ...
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
📅 06.11.2026 👁️ 0
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
Tenerife is facing an orange rain warning on Sunday as storm Bruna moves across the Canary Islands, with up to 100 millimetres of rain expected in 12 ...
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 0
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
Svörin leyndu ekki á sér. Gulur og bleikur eru í uppáhaldi en ekki grár eða steinngrár sem einkennir íslenska byggingarlist og bílaflotan hér á landi....
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 0
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem játað hefur innbrotin Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ, birti í dag myndband af innbrot...
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
📅 06.11.2026 👁️ 0
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
Stöðugildum innan Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis fækkar um átta með ráðstöfunum sem gripið var til í vikunni.Í skriflegu svari frá ráðun...
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
📅 06.11.2026 👁️ 0
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sagði í tilkynningu frá skólanum í gær að nauðsynlegt væri að leiðrétta fjármögnun ...
„Við þurfum að laga þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 0
„Við þurfum að laga þetta“
Dagur gegn einelti var haldinn hátíðlegur í Hlíðaskóla. Halla Tómasdóttir forseti Íslands veitti Fjölbrautaskóla Suðurlands hvatningarverðlaun fyrir f...
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
📅 06.11.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
Örvænting stjórnarandstöðunnar og Morgunblaðsins hefur náð nýjum hæðum með þeirri ofuráherslu sem lögð hefur verið á að snúa út úr öllu sem snýr að má...
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
📅 06.11.2026 👁️ 1
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
Flugmaður lögregluþyrlu í Bretlandi hefur verið sakaður um að „teikna“ typpamynd á flugkort. Flugmaðurinn segist hafa verið að hringsóla við leit.Bres...
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
Breska sjónvarpsstöðin Sky, búlgarska stöðin Nova TV og RTÉ, írska ríkissjónvarpið, fengu í dag sprengjuhótanir. Rask varð á starfsemi enda þurfti að ...
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
📅 06.11.2026 👁️ 1
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp Fréttin6. nóvember 2026ErlentLeave a Comment Mikill eldur braust...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Sa...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leiddu til manndráps - Vísir

„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Rottupungurinn reyndist vera æxli - Vísir

Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
Elvar Árni Lund sagði upp starfi sínu sem sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Norðurþings vegna ágreinings um fyrirhugað vindorkuver á Hnotastein...
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
Það er nóg um að vera hjá Siggu Ózk þessa dagana. Í dag gaf hún út aðra plötu sína, Pink Static, sem samanstendur af fimm glænýjum lögum auk hinna áðu...
Stjörnugrís kennir Einari Loga um ástand grísanna í myndskeiðinu
📅 06.11.2026 👁️ 2
Stjörnugrís kennir Einari Loga um ástand grísanna í myndskeiðinu
Fyrra innbrot Einars Loga Péturssonar í gyltubú Stjörnugríss, 11. maí í vor, olli dýrunum hræðslu, óbætanlegum skaða og dauða og er dýraníð.Innbrotið ...
Íris Helga komin í nýtt nálgunarbann eftir ásókn gegn brotaþolum í vikunni
📅 06.11.2026 👁️ 2
Íris Helga komin í nýtt nálgunarbann eftir ásókn gegn brotaþolum í vikunni
Lögreglan á Suðurnesjum birti Írisi Helgu Jónatansdóttur 12 mánaða nálgunarbann fimmtudaginn 5. nóvember, eftir atvik miðvikudaginn 4. nóvember síðdeg...
Man attacked with machete outside his home in Corralejo
📅 06.11.2026 👁️ 2
Man attacked with machete outside his home in Corralejo
A 25-year-old man has been arrested after allegedly attacking another man with a machete at his home in Corralejo, leaving him with a seven-centimetre...
Faðir Meghan Markle var handtekinn í Flórída í dag grunaður um vörslu barnaníðsefnis
📅 06.11.2026 👁️ 2
Faðir Meghan Markle var handtekinn í Flórída í dag grunaður um vörslu barnaníðsefnis
Thomas Markle eldri, faðir hertogaynjunnar Meghan Markle, hefur verið handtekinn af bandarísku alríkislögreglunni FBI. Frá þessu greinir The New York ...
Kourani beri á­byrgð á sprengjuhótununum - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Kourani beri á­byrgð á sprengjuhótununum - Vísir
Opinberum stofnunum, leikskólum og fyrirtækjum hafa borist sprengjuhótanir undanfarna daga. Vísir greindi frá því í gær að Keflavíkurflugvelli hafi bo...
Davíðstíminn: Davíð og frjálshyggjumennirnir kúventu afstöðu sinni til dreifðs eignarhalds á bönkunum
📅 06.11.2026 👁️ 2
Davíðstíminn: Davíð og frjálshyggjumennirnir kúventu afstöðu sinni til dreifðs eignarhalds á bönkunum
Davíð Oddsson og frjálshyggjumennirnir í kringum hann vildu upphaflega passa upp á að eignarhald bankanna eftir einkavæðingu yrði dreift og enginn fen...
Sendimaður Trumps kynnir áætlanir um að endurmóta öryggismál í Evrópu í samráði við Rússland
📅 06.11.2026 👁️ 2
Sendimaður Trumps kynnir áætlanir um að endurmóta öryggismál í Evrópu í samráði við Rússland
Sendimaður Trumps kynnir áætlanir um að endurmóta öryggismál í Evrópu í samráði við Rússland Fréttin6. nóvember 2026ErlentLeave a Comment Jared Kushne...
Markle hand­tekinn fyrir vörslu barnaníðsefnis - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Markle hand­tekinn fyrir vörslu barnaníðsefnis - Vísir
Fjölmiðlar vestanhafs og á Bretlandseyjum greina frá handtökunni.  Fjöldi alríkisfulltrúa tók þátt í aðgerðunum í borginni Lakeland, sem er skammt frá...
Segist starfa einn og reiknar með sekt - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Segist starfa einn og reiknar með sekt - Vísir
Einar Logi birti í gær myndband á Instagram af innbroti sínu í svínabú hjá Stjörnugrís. Forstjóri hjá Stjörnugrís segir myndbandið ekki gefa rétta myn...
Snorri Másson gagnrýnir túlkun Samfylkingarinnar á kosningasigri demókrata – segir brottfararstöðina afhjúpa veikleika ríkisstjórnarinnar
📅 06.11.2026 👁️ 2
Snorri Másson gagnrýnir túlkun Samfylkingarinnar á kosningasigri demókrata – segir brottfararstöðina afhjúpa veikleika ríkisstjórnarinnar
Snorri Másson gagnrýnir túlkun Samfylkingarinnar á kosningasigri demókrata – segir brottfararstöðina afhjúpa veikleika ríkisstjórnarinnar Fréttin6. nó...
Hafi brotist aftur inn til að geta dregið upp verri mynd - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hafi brotist aftur inn til að geta dregið upp verri mynd - Vísir
Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem játað hefur innbrot í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ, birti í dag myndband af...
Kourani á bak við sprengjuhótanirnar
📅 06.11.2026 👁️ 2
Kourani á bak við sprengjuhótanirnar
Sprengjuhótanir sem hafa borist ýmsum ríkisstofnunum og fyrirtækjum hafa verið raktar til Sýrlands. Þær eru allar sendar úr sama netfangi sem Mohamed ...
Segir fölsuð gögn hluta af greinargerð Írisar Helgu
📅 06.11.2026 👁️ 2
Segir fölsuð gögn hluta af greinargerð Írisar Helgu
Fjölskyldumeðlimur brotaþola í málinu gegn Írisi Helgu Jónatansdóttur sagði fölsuð gögn hafa verið í greinargerð sem hún lagði fyrir dóm. Aðalmeðferð ...
Faðirinn laus úr haldi vegna manndráps í Breiðholti
📅 06.11.2026 👁️ 2
Faðirinn laus úr haldi vegna manndráps í Breiðholti
Faðir sem handtekinn var í tengslum við rannsókn á manndrápi í Breiðholti aðfaranótt sunnudags er laus úr haldi.Þetta staðfestir Guðmundur St. Ragnars...
Brand's barrister refers himself to regulator after report he confronted journalist
📅 06.11.2026 👁️ 2
Brand's barrister refers himself to regulator after report he confronted journalist
Ian Winter allegedly confronted a reporter outside court who had investigated the comedian.
Íslenska sumargotssíldin sækir austur í haf og blandast norsk-íslenskri síld
📅 06.11.2026 👁️ 2
Íslenska sumargotssíldin sækir austur í haf og blandast norsk-íslenskri síld
Segja má að vertíðarskil séu hjá síldveiðiflotanum. Veiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum fer að ljúka og þá hefjast veiðar á íslenskri sumargotssí...
New wave of bomb threats hit European airlines
📅 06.11.2026 👁️ 2
New wave of bomb threats hit European airlines
No link has been established between the threats against the airlines and those against the media outlets.
Mildar alla dauða­dóma í Kali­forníu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Mildar alla dauða­dóma í Kali­forníu - Vísir
Í opnu bréfi sem ríkisstjórinn birti í gær segir hann að eftir nærri því þrjátíu ára störf við opinbera stjórnsýslu hafi Newsom orðið þeirrar skoðunar...
AI stocks bounce back after trillions wiped from market values
📅 06.11.2026 👁️ 2
AI stocks bounce back after trillions wiped from market values
Investors had been selling off tech shares in part due to concerns the Democrat election victory would mean slower AI development.
Afhjúpar hræðilega aðferð til að aga börnin sín
📅 06.11.2026 👁️ 3
Afhjúpar hræðilega aðferð til að aga börnin sín
Sænski leikarinn Bill Skarsgård hefur hrætt milljónir kvikmyndagesta með hlutverkum sínum sem dansandi trúðurinn Pennywise í IT og sem greifinn Orlok ...
Sér sárlega eftir að hafa hafnað skrýtnu hlutverki: „Ég hugsaði of mikið um þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sér sárlega eftir að hafa hafnað skrýtnu hlutverki: „Ég hugsaði of mikið um þetta“
Bandaríski leikarinn Matt Damon er í forsíðuviðtali GQ Men of the Year sem kom út í gær.
Is it the end of the road for Tesla's Cybertruck?
📅 06.11.2026 👁️ 3
Is it the end of the road for Tesla's Cybertruck?
The car company's CEO Elon Musk has said production will halt in Texas, to focus on the firm's self-driving Cybercabs.
„Reykjavíkurborg! Setjið rafmagnið á, fjandinn hafi það!“
📅 06.11.2026 👁️ 3
„Reykjavíkurborg! Setjið rafmagnið á, fjandinn hafi það!“
„Reykjavíkurborg! Setjið rafmagnið á, fjandinn hafi það!“ Og setjist svo niður með hjólabúum á Sævarhöfða og leysið málið!“segir Kolbrún Baldursdóttir...
Ætlaði að gera vel við sig daginn fyrir afmælið – Allt fór úr böndunum eftir að óvæntur grunur vaknaði
📅 06.11.2026 👁️ 2
Ætlaði að gera vel við sig daginn fyrir afmælið – Allt fór úr böndunum eftir að óvæntur grunur vaknaði
Karlmaður sem ætlaði að gera vel við sig í tilefni afmælis síns og pantaði vændiskonu á gistiheimili í Reykjavík hefur verið dæmdur í 60 daga skilorðs...
Jón Trausti svarar Hannesi: „Hvorki skrifuð af spjallmenni né skjallmenni“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Jón Trausti svarar Hannesi: „Hvorki skrifuð af spjallmenni né skjallmenni“
Jón Trausti Reynisson, annar höfunda nýrrar bókar um Davíð Oddsson, vísar alfarið á bug fullyrðingum Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um að bókin sé ...
Burnham says he was not aware of Brand's 'horrific' crimes
📅 06.11.2026 👁️ 3
Burnham says he was not aware of Brand's 'horrific' crimes
The prime minister told the BBC that Labour politicians courting the comedian a decade ago had not been aware of his crimes.
Trölli upp­seldur út árið - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Trölli upp­seldur út árið - Vísir
Mikil eftirvænting ríkir eftir jólasöngleiknum Þegar Trölli stal jólunum! sem verður frumsýndur á morgun. Björgvin Franz Gíslason fer þar með hlutverk...
Upp­selt út árið og sýningar næsta leik­árs komnar í sölu - Vísir

Lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu skilar sér ekki í vasa Íslendinga
📅 06.11.2026 👁️ 2
Lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu skilar sér ekki í vasa Íslendinga
Lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu hefur ekki skilað sér í vasa íslenskra neytenda, segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaei...
Faðirinn laus úr haldi - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Faðirinn laus úr haldi - Vísir
Faðirinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald seint á sunnudaginn til 9. nóvember en hefur nú verið látinn laus úr haldi þar sem rannsóknarhagsmunir hafa v...
Stefnir í sögu­lega mörg til­felli lekanda - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Stefnir í sögu­lega mörg til­felli lekanda - Vísir
Á fyrstu níu mánuðum ársins voru 283 greindir með lekanda en þar af voru 249 karlar. Samkvæmt því sem fram kemur í Farsóttarfréttum hefur tíðnin aukis...