Fjölmiðlar vestanhafs og á Bretlandseyjum greina frá handtökunni.
Fjöldi alríkisfulltrúa tók þátt í aðgerðunum í borginni Lakeland, sem er skammt frá Tampa, þar sem hinn 82 ára Markle var settur í handjárn og fluttur á brott í sjúkrabíl.
Í lok síðasta mánaðar sakaði Thomas Markle yngri, hálfbróðir Meghan, föður sinn um vörslu barnaníðsefnis eftir að hafa fundið ógrynni nektarmynda af börnum á heimili hans í Filippseyjum. Sonurinn kom myndefninu til lögreglunnar í Filippseyjum og tilkynnti málið jafnframt til FBI.
Markle hefur þverneitað fyrir að barnaníðsefnið hafi verið í fórum hans og sagðist ekki hafa búið í húsinu þar sem myndirnar fundust síðastliðin tvö ár.
Í kjölfar rannsóknar greindi lögreglan í Filippseyjum frá því að um 7.500 myndir af ólögráða börnum hefðu fundist á tölvum sem höfðu verið í fórum Markle eldri. Innanríkisráðherra Filippseyja, Juanito Victor Remulla, sagði að myndirnar sem fundust í rannsókninni væru af börnum allt niður í tíu ára aldur.
Lögreglan í Filippseyjum sagðst á þriðjudaginn vera „mjög nálægt“ því að ákæra Markle formlega. Á miðvikudag kom svo í ljós að FBI væru að rannsaka geymslur sem Markle hafði leigt í Hollywood og að þar væri mögulega annar skammtur af barnaníðsefni. Hann hefur nú verið handtekinn og ákærður í málinu.