Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem játað hefur innbrot í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ, birti í dag myndband af innbroti sínu hjá Stjörnugrís. Hann hvatti þar fólk til að hætta að borða svínakjöt. Fram kom í tilkynningu frá MAST eftir myndbirtinguna að hún yrði rannsökuð.
Stjörnugrís hafnar í yfirlýsingu þeirri mynd sem er dregin upp af starfsemi þeirra í myndefninu og segir það án samhengis. Þau segja myndbirtinguna verða kærða til lögreglu og öll gögn félagsins lögð fyrir viðeigandi stjórnvöld.
„Félagið leggur áherslu á að háttsemi Einars Loga og afleiðingar hennar verði rannsakaðar til hlítar. Stjörnugrís fagnar jafnframt rannsókn Matvælastofnunar og málefnalegri umræðu um aðbúnað og velferð dýra,“ segir í yfirlýsingunni.
Þau segja velferð dýranna eiga að vera í fyrirrúmi og benda á að eftirlit með dýrunum þeirra sé mikið og stöðugt. Þjónustudýralæknir skoði búið á tveggja vikna fresti og búfjáreftirlit Matvælastofnunar hafi komið í eftirlit á búið þann 15. október síðastliðinn.
„Það eftirlit var án alvarlegra athugasemda.“
Í yfirlýsingu sinni segir Stjörnugrís að í kjölfar myndbirtingarinnar telji félagið nauðsynlegt að gera grein fyrir alvarlegum afleiðingum innbrotanna og setja þau í samhengi.
„Einar Logi braust tvívegis inn á gyltubú félagsins, fyrst 11. maí síðastliðinn og aftur 2. september. Félagið lítur háttsemi hans mjög alvarlegum augum. Að mati þess olli fyrra innbrotið dýrunum mikilli hræðslu, alvarlegum skaða og dauða. Þrátt fyrir að greint hefði verið frá þessum afleiðingum braust hann aftur inn á búið,“ segir í yfirlýsingu Stjörnugríss.
Skiljanlegt að myndefnið veki óhug
Þar segir að myndskeið Einars Loga sýni meðal annars dauða og veikburða grísi, afleiðingar fósturláta og dýr með áverka.
„Slíkt myndefni vekur skiljanlega óhug. Stjörnugrís telur það hins vegar fyrst og fremst sýna afleiðingar fyrra innbrots Einars Loga. Að setja það fram sem lýsingu á venjubundnum aðbúnaði og umönnun dýranna gefur því mjög villandi mynd af starfseminni,“ segir í yfirlýsingunni.
Þá kemur fram að samkvæmt þeirra upplýsingum hafi orðið mikil hræðsla og röskun við fyrra innbrotið. Grísir hafi troðist undir, drepist eða slasast alvarlega. Þá hafi gyltur misst fóstur og fætt andvana eða veikburða grísi eftir innbrotið.
„Dýrin þurftu aukna umönnun og tíma til að jafna sig eftir áfallið.“
Háttsemi Einars Loga dýraníð
Þá segir í yfirlýsingu Stjörnugríss að það gruni að fyrra innbrotið hafi ekki skilað því myndefni sem Einar Logi sóttist eftir og því hafi hann brotist aftur inn í von um að geta dregið upp verri mynd af aðstæðum.
„Stjörnugrís telur háttsemi Einars Loga hafa valdið dýrunum alvarlegum og í sumum tilvikum óbætanlegum skaða. Að mati félagsins er um dýraníð að ræða. Endurtekið innbrot, eftir að greint hafði verið frá skaðlegum afleiðingum hins fyrra, eykur enn á alvarleika málsins,“ segir í yfirlýsingunni.
Ekki dýravernd
Þá gagnrýnir Stjörnugrís yfirlýstan vilja Einars Loga til að vernda dýr og að hegðun hans hafi sett þau í hættu.
„Sóttvarnir og takmarkanir á aðgangi að búum eru mikilvægur þáttur í vernd, heilsu og velferð dýranna. Með innbrotunum braut Einar Logi gegn þessum ráðstöfunum. Að mati félagsins samræmast aðgerðir hans ekki yfirlýstu markmiði um dýravelferð.“