Framtíð Cybertruck, hins umdeilda rafmagnspallbíls Tesla, er í mikilli óvissu eftir að Elon Musk tilkynnti að framleiðslu hans í Texas yrði hætt á næsta ári. Ummæli hans og yfirverkfræðings verkefnisins benda til þess að dagar bílsins kunni að vera taldir.Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá þessu.Musk greindi frá því að Tesla hygðist hætta framleiðslu Cybertruck í verksmiðju sinni í Texas á næsta ári til að rýma fyrir aukinni framleiðslu Cybercab, sjálfkeyrandi leigubíls fyrirtækisins.
Dagar Cybertruck virðast taldir