Allt tiltækt slökkvilið var kallað út vegna eldsvoða í Nytjamarkaði ABC barnahjálpar við Smiðjuveg 2 um klukkan tvö í nótt. Mikill eldur var í húsnæðinu þegar slökkvilið kom á vettvang en vel gekk að ráða niðurlögum hans. Slökkvistarfi og reykræstingu lauk um klukkan fjögur.
„Já, þetta var hörkueldur,“ sagði Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi fyrr í morgun.
Engan sakaði í eldinum en íbúar sem voru staddir annars staðar í húsinu þurftu að yfirgefa það tímabundið. Eldsupptök eru ókunn og lögregla rannsakar málið.
Mikil vinna lögð í markaðinn
Hrönn Svansdóttir, framkvæmdastjóri ABC barnahjálpar, segir töluvert tjón hafa orðið, einkum í vörumóttöku þar sem talið er að eldurinn hafi komið upp. Samtökin fluttu starfsemi markaðarins af Nýbýlavegi á Smiðjuveg um síðustu áramót. Hún segir að mikil vinna hafi farið í að koma versluninni fyrir í nýja húsnæðinu.
„Auðvitað er alltaf erfitt að horfa upp á svona mikið tjón og alla vinnuna sem búið er að leggja í markaðinn. En sem betur fer sýnist okkur þetta vera afmarkað við okkar hólf,“ segir Hrönn.
Mikilvæg fjáröflun fyrir börn í sex löndum
Nytjamarkaðurinn er ein helsta fjáröflunarleið ABC barnahjálpar sem styður börn í Kenýa, Pakistan, Bangladess, Búrkína Fasó, Úganda og Filippseyjum.
„Þetta er svona okkar helsta fjáröflun fyrir utan beinan stuðning fólks eða foreldra til barna og við erum með starfsemi í sex löndum,“ segir Hrönn.
ABC Barnahjálp eru íslensk hjálparsamtök sem voru stofnuð árið 1988. Hrönn segir að tekjur af nytjamarkaðnum standi bæði undir rekstri samtakanna og verkefnum þeirra erlendis. Hún segir markaðinn einnig gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki hér á landi. Þar starfi launafólk, sjálfboðaliðar og samfélagsþjónar auk fólks sem sé í vinnu með stuðningi.
„Það eru margir sem að njóta góðs af bara koma inn á markaðinn, annaðhvort til þess að stunda vinnu eða bara til að koma og eiga samtal. Þá eru margir sem þurfa að versla vörur á þeim verðum sem við erum að bjóða og hafa ekki tök á að versla í öðrum búðum,“ segir Hrönn.
„Mikill hugur í fólki“
Hrönn segir starfsfólk að vonum leitt yfir eldsvoðanum en jafnframt staðráðið í að koma starfseminni aftur af stað.
„Það er mikill hugur í fólki og við bara brettum upp ermar og tökumst á við þetta verkefni,“ segir Hrönn.
Hún segist þakklát fyrir þann hlýhug sem samtökunum hafi verið sýndur og trúi því að almenningur muni áfram styðja við starfsemina.
„Okkur berst alltaf sú hjálp sem að við þurfum og ég hef enga trú á að það verði öðruvísi núna. Fólk er rosalega duglegt að bjóða fram aðstoð sína,“ segir Hrönn.
Hvenær hægt verður að opna að nýju liggur ekki fyrir en Hrönn segir næstu skref skýrast þegar umfang tjónsins hefur verið metið.