Dýrin í Hálsaskógi verða frumsýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins í september 2027 en undirbúningur er hafinn og nú er unnið að ráðningum í helstu hlutverk.
Ný kynslóð barna á Íslandi fær þá að hrífast og skemmta sér og hræðast kannski örlítið, líkt og foreldrar þeirra, ömmur og afar gerðu í fyrri uppfærslum. Mikki refur, Lilli klifurmús, bangsapabbi og Amma mús munu birtast ljóslifandi á sviðinu.
„Það er sannarlega gleðiefni að nú sé komið að því að ný kynslóð fái að sjá glænýja uppsetningu á hinu ástsæla barnaleikriti Dýrin í Hálsaskógi. Í áratugi hefur hver kynslóð fengið að kynnast Mikka, Lilla klifurmús, Bangsapabba og öllum hinum dýrunum í Hálsaskógi, og ég veit að fjölskyldur um allt land gleðjast yfir því að nú sé komið að því,“ segir Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri.
Hann segir þetta verk, eins og Kardemommubæinn og Línu Langsokk, samofið menningarsögu okkar.
„Samband Thorbjörns Egners við Þjóðleikhúsið hefur alltaf verið einstakt.“
Hann segir að það verði dásamlegt að sjá verkið í uppsetningu, 15 árum eftir þá síðustu, í meðförum nýrra listamanna.
„Ég get ekki afhjúpað enn hverjir verða í hlutverkunum, en það er gaman að geta opinberað að Agnes Wild mun leikstýra. Á sama tíma kveðjum við Línu Langsokk eftir um 120 uppseldar sýningar og sennilega eru 10-15 ár þangað til hún ratar aftur á stóra sviðið.“
Sýningar Agnesar undanfarin ár hafa vakið mikla hrifningu, svo sem Blómin á þakinu og ekki síður Lína Langsokkur.
Spennt að taka við
Agnes segist ótrúlega spennt að stökkva af stað í þetta ævintýri.
„Með stórkostlega fólkinu í Þjóðleikhúsinu. Það er sannur heiður að fá að leikstýra Dýrunum í Hálsaskógi, en þetta verk hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér frá því að ég man eftir mér. Þegar ég var lítil hlustaði ég á vínilplötuna svo mikið að ég var farin að læra hvenær þurfti að banka í plötuspilarann til að hoppa yfir rispurnar. Ég hlakka til að bjóða unga sem aldna velkomna í Hálsaskóg næsta haust.“
Verkið er eitt þriggja vinsælustu barnaverka þjóðarinnar frá upphafi en hin eru Kardemommubærinn og Lína Langsokkur.
Uppsetningar Þjóðleikhússins á Dýrunum í Hálsaskógi eiga sér merkilega sögu en verkið var fyrst sýnt árið 1962 og þá var það höfundurinn sjálfur, Torbjörn Egner, sem hannaði búninga. Dýrin í Hálsaskógi voru þá glænýtt verk og var sýnt víða í leikhúsum í Skandinavíu um þetta leyti. Egner varð svo hrifinn af uppsetningu Þjóðleikhússins að nokkrum árum síðar gaf hann leikhúsinu sýningarréttinn á öllum verkum sínum til 100 ára.