„Forgangsatriðið er að koma markaðnum aftur í gang,“ segir Hrönn Svansdóttir framkvæmdastjóri ABC barnahjálpar. „Við brettum upp ermar og opnum sem fyrst en það skýrist náttúrulega bara í dag og um helgina hvað við náum að vera snögg að því.“
Eldur kviknaði í Nytjamarkaði ABC í Kópavogi í nótt. Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um eldinn um klukkan tvö í nótt og allar stöðvar voru sendar á staðinn.
Vörumóttakan verst farin
Hrönn vaknaði við símtal frá Securitas klukkan tvær mínútur yfir tvö. Þegar hún kom á vettvang hafði slökkviliði tekist að slökkva eldinn.
„Það var mikill reykur og slökkviliðið bara við sín störf. Það er náttúrulega mikið sót. Það er aðallega vörumóttakan sem er illa brunnin. En svo eru reykskemmdir og sót og vatn eflaust fyrir innan,“ segir hún.
Starfsfólk markaðarins hefur ekki fengið að fara inn í verslunarrýmið sökum rannsóknar lögreglu. Eldsupptök eru enn ókunn.
Markaðurinn mikilvægur íslensku samfélagi
Hrönn segist þar af leiðandi ekki vita hvað tjónið er mikið. Hún telur brunaskemmdirnar einskorðast við vörumóttökuna en vörurnar séu líklegast allar ónýtar sökum reyks. Hún treystir því að markaðurinn verði fylltur af nýjum vörum þegar hann opni aftur.
Nytjamarkaður ABC er helsta fjáröflunin fyrir starfsemi ABC barnahjálpar fyrir utan beina styrki frá fólki.
„Þetta er líflína fyrir okkur og skiptir miklu máli,“ segir Hrönn. Þar að auki sé markaðurinn tækifæri til vinnu fyrir fólk sem ekki geti unnið annars staðar og lausn fyrir fólk sem hafi ekki tök á því að versla sér nýjar vörur.
„Þetta er mjög mikilvægt fyrir íslenskt samfélag,“ segir Hrönn.