Frummat Samkeppniseftirlitsins (SKE) segir að „ríkar vísbendingar“ séu um að Tix sé í markaðsráðandi stöðu á markaði fyrir rafræna miðasölu á viðburði þriðja aðila á Íslandi. SKE beinir leiðbeiningum og tilmælum til Tix og helstu viðburðarhúsa landsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.
Markaðsráðandi staða er ekki ólögleg sem slík en henni fylgja sérstakar skyldur samkvæmt samkeppnislögum.
„Samkeppniseftirlitið hefur beint þeim tilmælum til Tix að fyrirtækið gæti að stöðu sinni á markaði og leggi upplýst mat á hvort fyrirtækið sé í markaðsráðandi stöðu. Samhliða er því beint til fyrirtækisins að yfirfara samninga við viðsemjendur sína og ganga úr skugga um að í þeim felist ekki einkakaup eða önnur samkeppnishamlandi háttsemi sem fara kunni gegn samkeppnislögum.“
Fengu erindi frá FÍH og ábendingar
Samkeppniseftirlitið fékk erindi frá Félagi íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) í fyrra auk annarra ábendinga um mögulegar samkeppnishindranir á miðasölumarkaði.
SKE óskaði þá eftir sjónarmiðum Tix og nokkurra stærstu viðburðarhúsa landsins.
Samkeppniseftirlitið biðlar til Tix að gæta að stöðu sinni og til helstu viðburðarhúsa að grípa til aðgerða til að auka og auðvelda samkeppni á markaði fyrir miðasöluþjónustu.
„Í þeim tilvikum sem tæknilegir þættir standa því ekki í vegi ættu viðburðarhús og staðir að eftirláta það viðburðarhöldurum að semja við miðasöluþjónustu. Ef viðburðarhús gerir langtímasamninga um miðasöluþjónustu er mikilvægt að þeir byggi á útboði eða verðsamanburði,“ segir í tilkynningu.
Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið, að teknu tilliti til brýnni verkefna, að taka háttsemi Tix ekki til frekari skoðunar að svo stöddu.
„Eftirlitið áskilur sér rétt til að taka málið til frekari skoðunar síðar.“