Yfirvöld á Spáni ætla að veita Úkraínu 437 milljónir evra í hernaðaraðstoð. Volodomyr Zelensky forseti Úkraínu tilkynnti um þetta í færslu á X eftir fund með Pedro Sanchez forsætisráðherra Spánar.
Zelensky sótti fund Íberíu-Ameríkuráðstefnunnar í Madríd á miðvikudag þar sem hann hitti æðstu embættismenn frá spænsku- og portúgölskumælandi þjóðum í Evrópu og Ameríku.
Hann segir að hernaðaraðstoðin verði nýtt til að efla loftvarnir Úkraínu. Tafir hafa orðið á afhendingu flugskeyta fyrir Patriot-loftvarnarkerfin og árásir Rússa að undanförnu hafa valdið miklum skorti á rafmagni og vatni.