Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður utan flokka, rifjaði upp alvarlegt umferðarslys sem hann lenti í fyrir nákvæmlega 30 árum þegar hann tók til máls undir liðnum störf þingsins á Alþingi í gær.Í ræðu sinni gagnrýndi hann harðlega skaðabótalögin og hversu erfitt fólk sem verður fyrir líkamstjóni geti átt með að sækja rétt sinn gagnvart tryggingafélögum.„Í dag eru liðin 30 ár síðan ég lenti í umferðarslysi, slysi sem leiddi ásamt öðrum slysum til aðgerða á hálsi og mjóbaki,“ sagði Guðmundur Ingi í upphafi ræðu sinnar.
Þrjátíu ár frá slysinu sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Guðmund Inga