Veðurfyrirbærið El Niño gæti valdið verulegum truflunum á landbúnaðarframleiðslu á næstu mánuðum. Þetta gæti orðið til þess að matvælaverð hækki til muna á næstunni. Samkvæmt Alþjóðabankanum gæti heimsmarkaðsverðmatvæla hækkað um 10% á þessu ári og 7 % til viðbótar á næsta ári. Þetta kemur fram í frétt Rannsóknarseturs verslunarinnar, RSV.
Talið er að El Niño-veðurfyrirbærið verði öflugra í ár en nokkru sinni síðan Alþjóðaveðurfræðistofnunin byrjaði að mæla umfang þess fyrir 40 árum. Áhrifanna eigi eftir að gæta víða.
Alþjóðabankinn gerir ráð fyrir að heimsframleiðsla hrísgrjóna dragist saman í fyrsta sinn í áratug vegna óhagstæðra ræktunarskilyrða í Asíu. Pálmaolíuframleiðsla í Suðaustur-Asíu er einnig talin viðkvæm fyrir þurrkum, auk þess sem veðurfar getur haft áhrif á framleiðslu kaffis og kakós.
Síðasta spá bankans fyrir árið 2027 var birt í apríl en verðspár hafa hækkað undanfarna mánuði. Bankinn gerir ráð fyrir að hrísgrjón hækki um 21% frá fyrri verðspám, sykur um 12%, pálmaolía 15% og kakó 29%.
El Niño kemur ofan á hátt orkuverð og truflanir á útflutningi korns frá Rússlandi og Úkraínu sem auka einnig þrýsting á matvælaverð. Þá hafi stríðsátök í Mið-Austurlöndum einnig áhrif vegna truflana á alþjóðlegum flutningum og vöruframboði.
Þá segir í frétt RSV að verði veðuráhrif meiri en gert er ráð fyrir og átök haldi áfram geti heimsmarkaðsverð matvæla árið 2027 orðið um 12% hærra en grunnspá Alþjóðabankans gerir ráð fyrir.