Demókratar náðu meirihluta bæði í öldungadeild og fulltrúadeild bandaríska þingsins í kosningum 3. nóvember. Það er algengt að flokkur sitjandi forseta tapi þingmeirihluta í kosningum á miðri setu hans en þessar niðurstöður og stærð sveiflunnar koma engu að síður á óvart. Kosningarnar snerust mikið um Donald Trump, eins og hann lagði í raun upp með, en það kom á endanum niður á flokkssystkinum hans í Repúblikanaflokknum.
Forsetinn nýtur um þessar mundir ekki hylli nema um 36% kjósenda og það sást á úrslitunum. Í könnun sem gerð var fyrir sjónvarpsstöðvar vestra sást að þrír fjórðu kjósenda sögðust ekki sáttir við þá leið sem landið væri á, meirihluti þeirra sagði að efnahagsmálin skiptu mestu og tveir þriðju töldu ástandið hafa versnað í tíð Trumps. Spilling varð kosningamál og 62% sögðust telja að Trump skaraði eld að sinni köku frekar en að gæta hagsmuna Bandaríkjanna.
Demókratar sóttu mjög í sig veðrið í rauðum ríkjum sem kennd eru við einkennislit Repúblikana. Ekki síst vekur athygli sigur frambjóðenda þeirra til öldungadeildarinnar, til dæmis í Texas og Kansas Demókratar hafa ekki átt öldungadeildarfulltrúa frá Kansas í nærri hundrað ár. Enn á þó eftir að koma í ljós hve lengi það varir og svo eiga Demókratar eftir að sýna fram á að kjörið feli í sér breytingar – sem verður erfitt næstu tvö árin á meðan Trump hefur neitunarvald.
Sverrir Steinsson er doktor í stjórnmálafræði vestanhafs, kennir við háskóla í Toronto í Kanada og fylgist með stjórnmálum hjá grönnunum í suðri. Hann segir ekkert einhlítt svar við því hvort kosningarnar snerust um persónu forsetans eða efnahagsmálin.
Trump fór í stríð í Íran en hafði sagst ekki myndu hefja stríð. Það hefur dregist á langinn og orðið til þess að hækka olíuverð og verðlag hjá fólki sem þegar fannst vera tekið að harðna á dalnum. Fyrir það galt forsetinn og flokkur hans í kosningunum að mati greinenda. Það á eftir að koma í ljós hver áhrifin verða í flokknum en að minnsta kosti er allt eins líklegt að fleiri Repúblikanar stígi fram, sækist eftir að verða forsetaefni og reyni að gera skil milli sín og forsetans. Meðal þess sem talið er hafa ráðið úrslitum er að kjósendur af rómönskum uppruna, sem er sá hópur sem fjölgar mest í Bandaríkjunum, urðu afhuga Trump og framgöngu hans í útlendingamálum og brottvísunum.
Persóna Trumps hefur verið sá möndull sem umræða um bandarísk stjórnmál hefur snúist um, að minnsta kosti þegar fjær Bandaríkjunum dregur. Athyglin beinist fljótt eftir kosningar að því hver verða forsetaefni flokkanna í kosningum eftir tvö ár. Sverrir nefnir til dæmis Jon Ossoff, öldungadeildarþingmann Demókrata í Georgíu og það verði líka áhugavert að sjá hver viðbrögð JD Vance varaforseta verða. Hann hefur verið sterklega orðaður við framboð og er líka nátengdur Donald Trump. Spurningin er hvort Vance og flokkssystkin hans í Repúblikanaflokknum reyna að greina sig frá forsetanum í ljósi úrslitanna.