Bresk kona á sjötugsaldri hefur verið dæmd fyrir að troða eigin skít upp í munn eiginmanns síns. Konan hefur ítrekað beitt hann líkamlegu og andlegu ofbeldi.Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.Alison Moore, 63 ára gömul kona frá Damerham nærri Southampton við suðurströnd Englands, hefur verið dæmd fyrir heimilisofbeldi gagnvart eiginmanni sínum og á hana sett nálgunarbann. Tróð hún meðal annars eigin skít upp í munn hans og hleypti honum ekki að vaski til að þrífa sig.
Tróð eigin skít upp í eiginmann sinn – Kenndi þunglyndi eftir dauða foreldra sinna um